Nemendur vilja láta halda sér við efnið Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 9. nóvember 2015 08:00 Anna Kristín Sigurðardóttir, menntunarfræðingur. vísir/ernir
Framhaldsskólanemendur vilja fjölbreytt námsumhverfi, meiri sveigjanleika og brjóta upp gömlu skólastofuna sem þeir hafa setið í frá sex ára aldri. Þetta kemur fram í niðurstöðum rannsóknar Önnu Kristínar Sigurðardóttur sem hún gerði um námsumhverfi framhaldsskólanema. 56 nemendur voru spurðir hvað þeim fyndist ákjósanlegt umhverfi til náms og hvaða möguleika þeir hefðu til áhrifa á námsaðstæður sínar. Helstu niðurstöður eru að framhaldsskólanemendur vilja hafa umhverfi sitt á allt annan veg en það er í allflestum framhaldsskólum í dag. „Í fyrsta lagi eru nemendur ekki spurðir álits en þeir vilja gjarnan hafa meira til málanna að leggja. Í öðru lagi kjósa þeir námsumhverfi þar sem þeir geta setið í hópum án þess að hópavinnu sé þröngvað upp á þá. Þeir kjósa síður námsumhverfi sem er í föstum skorðum eða innrammað, eins og í hefðbundnum skólastofum,“ segir Anna Kristín. Aðspurð hvort einbeiting nemenda verði ekki minni ef þeir fá slíkt frelsi segir Anna Kristín nemendur þvert á móti vilja meiri ramma með breyttu umhverfi. „Í stórum stofum og fyrirlestrasölum geta nemendur lokað sig af úti í horni, farið á netið eða sofnað. Nemendurnir vilja einmitt meiri aga og ramma sem heldur þeim við efnið, þeim fannst breytt fyrirkomulag bjóða upp á það. Þeir voru alls ekki að biðja um umhverfi þar sem þeir geta slegið slöku við.“ Nýir framhaldsskólar hafa verið byggðir eftir hugmyndafræði um opna skóla. Anna Kristín bendir á að eldri skólar geti brotið upp umhverfið með nýjum kennsluháttum, líkt og margir grunnskólar hafa gert. „En hefðin er afar sterk í þessum málum,“ segir hún.
Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Fleiri fréttir Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Sjá meira