Innlent

Horfinn í 17 daga

Kristjana Björg Guðbrandsdóttir skrifar
Hörður Björnsson hefur verið týndur í 17 daga, leit að honum hefur engan árangur borið. Björgunarsveitir leita ekki lengur að honum en lögregla er í viðbragðsstöðu.
Hörður Björnsson hefur verið týndur í 17 daga, leit að honum hefur engan árangur borið. Björgunarsveitir leita ekki lengur að honum en lögregla er í viðbragðsstöðu.
„Við erum ekki hættir, við leitum enn eftir sterkum vísbendingum, segir Ágúst Svansson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Ágúst hefur nú yfirumsjón með leitinni að Herði sem hefur enn engan árangur borið.

„Það hafa engar haldgóðar vísbendingar borist,“ segir hann, en Harðar hefur verið leitað síðan 14. október. Ágúst segir vísbendingar hafa borist um ferðir hans en þær hafi leitt til manna líkum honum í útliti.

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar hafa aðstoðað lögreglu við leitina. Um tvö hundruð manns hafa komið að leitinni og lögregla biðlaði til almennings í síðustu viku að aðstoða þá við leitina með því að leita í görðum sínum og nærumhverfi, en einnig öðrum svæðum sem fólki finnst koma til greina að Hörður gæti leynst. Hans hefur því verið leitað ítarlega.

Nú hafa björgunarsveitarmenn dregið sig í hlé þar til haldbetri vísbendingar berast. Ágúst segir það vitanlega erfitt aðstandendum. „Við bregðumst strax við ef sterk vísbending berst, það er búið að leita rosalega vel og margir tekið þátt í leitinni. Hún hefur einfaldlega ekki borið árangur. Þetta er auðvitað erfitt aðstandendum að það sé ekki lengur víðtæk leit en við gerum allt sem við getum.“

Hann biðlar áfram til almennings að hafa augun hjá sér. Hörður er 188 cm á hæð, grannur, ljóshærður með rautt skegg. Síðast sást til hans á Laugarásvegi í Reykjavík um kl. 04.00.  Hörður er ekki talinn hættulegur.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×