Sakar Vilhjálm um þráhyggju Jón Hákon Halldórsson skrifar 26. október 2015 15:45 Björgólfur Thor Björgólfsson fjárfestir.
Björgólfur Thor Björgólfsson fjárfestir sakar Vilhjálm Bjarnason um þráhyggju vegna málaferla málsóknarfélags á hendur þeim fyrrnefnda. Vilhjálmur er í hópi aðila málsóknarfélagsins. Alls hafa 207 gengið til liðs við málsóknarfélagið, einstaklingar, lögaðilar og lífeyrissjóðir. Stefnan verður þingfest á morgun. Eins og fram kom í Fréttablaðinu í morgun telur málsóknarfélagið að Björgólfur Thor hafi leynt upplýsingum um eignarhald sitt á Landsbankanum til að komast undan reglum um birtingu upplýsinga um viðskipti bankans við hann. Þau viðskipti hafi verið langt yfir þeim mörkum sem Fjármálaeftirlitið heimilaði. Þá byggir félagið málatilbúning sinn á því að Samson eignarhaldsfélag, sem var í eigu Björgólfs og föður hans, hafi allt frá árinu 2006 ráðið yfir meirihluta atkvæða í Landsbanka Íslands hf. og því hafi félagið haft skyldu til að gera öðrum hluthöfum yfirtökutilboð. Björgólfur Thor segist ekkert hafa gert rangt. „Málefni mín og bankans hafa verið rannsökuð í þaula af þar til bærum yfirvöldum og ekki talin ástæða til aðgerða í nokkru þeirra. Þar að auki hef ég gert upp allar mínar skuldir við bankann og hann því skaðlaus af viðskiptum við mig. Slitastjórn bankans hefur staðfest að hann eigi engar kröfur á mig,“ segir Björgólfur á vefsíðu sinni. En hann segir að með þráhyggjuna að vopni sjá Vilhjálmur rangfærslur og svik þar sem sérfróðir rannsakendur sjái ekkert aðfinnsluvert. „Það er illt að dómskerfið þurfi að eyða tíma sínum í slíkan málatilbúnað,“ segir hann.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira