Skrifstofur sem sinna sömu verkefnum Sveinn Arnarsson skrifar 28. október 2015 07:00
stjórnsýsla Ný skrifstofa þjóðhagsmála sem staðsett er í forsætisráðuneytinu, sinnir mjög svipuðu verkefni og skrifstofa efnahagsmála í fjármálaráðuneytinu. Guðrún Þorleifsdóttir, skrifstofustjóri efnahagsmála og fjármálamarkaðar í fjármálaráðuneytinu, sagði orðalagið um þessar skrifstofur nokkuð líkt en getur ekki með vissu sagt að þær vinni sömu vinnuna.Sigurður Már JónssonBreytingar á skipulagi forsætisráðuneytisins sem kynntar voru þann 20. október hafa í för með sér að skrifstofa þjóðhagsmála greini stöðu og þróun efnahagsmála innanlands og utan. Um störf skrifstofunnar segir að hlutverk hennar verði „að greina stöðu og þróun efnahagsmála innanlands og utan, meta horfur í efnahagsmálum og móta tillögur í málaflokknum fyrir forsætisráðherra og ríkisstjórn á hverjum tíma.“ Einnig að skrifstofan hafi umsjón með ráðherranefndum um efnahagsmál og ríkisfjármál. Á sama tíma er starfandi skrifstofa efnahagsmála og fjármálamarkaðar í fjármálaráðuneytinu. Skrifstofan „hefur umsjón með undirbúningi og eftirfylgni með efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar, mótun löggjafar um fjármálaþjónustu, samhæfingu opinberrar hagstjórnar og kynningu á efnahags- og fjármálamarkaðsmálum innanlands og utan. Í því skyni annast skrifstofan mat á þróun og horfum í efnahagsmálum og samskipti við Hagstofu Íslands um gerð þjóðhagsspár.“ Fjármálaráðuneytið fer með þessi mál með forsetaúrskurði. Sigurður Már Jónsson, upplýsingafulltrúi forsætisráðuneytisins, segir engan tvíverknað eiga sér stað. „Skrifstofa þjóðhagsmála mun starfa í samvinnu við fjármála- og efnahagsráðuneytið sem ber meginábyrgð á málum er lúta að efnahagsmálum, ríkisfjármálum og fjármálamarkaði, samkvæmt forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta. Áhersla skrifstofu þjóðhagsmála mun verða á lögbundnar ráðherranefndir um efnahagsmál og ríkisfjármál sem starfa undir forystu forsætisráðherra, væntanlegt þjóðhagsráð og almenna efnahagsráðgjöf til forsætisráðherra og ríkisstjórnar á hverjum tíma,“ segir Sigurður Már. „Gert er ráð fyrir að skrifstofustjóri verði skipaður á næstu mánuðum en engin áform eru á þessu stigi um ráðningu annarra starfsmanna.“
Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Fleiri fréttir Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Sjá meira