Spenna í aðdraganda þingkosninga Guðsteinn Bjarnason skrifar 29. október 2015 07:00 Krafist fjölmiðlafrelsis fyrir utan höfuðstöðvar dagblaðsins Bugün og sjónvarpsstöðvarinnar Kanaltürk. Fréttablaðið/AFP
Helstu fjölmiðlar tyrknesku stjórnarandstöðunnar hafa mátt sæta margs konar ofríki af hálfu stjórnvalda síðustu vikurnar. Í gær réðst lögreglan inn á skrifstofur sjónvarpsstöðvanna Kanaltürk og Bugün, sem báðar eru í eigu fjölmiðlaveldisins Koza-Ipek. Báðar þessar sjónvarpsstöðvar hafa, ásamt dagblöðunum Millet og Bugün, gefið stjórnarandstöðunni meira pláss en flestir aðrir fjölmiðlar landsins. Í september birti dagblaðið Bugün forsíðugrein þar sem tyrkneska stjórnin var sökuð um að hafa komið vígasveitum Íslamska ríkisins í Sýrlandi til aðstoðar. Stuttu síðar réðst lögreglan inn á skrifstofur Bugün. Fjölmiðlarnir, sem stjórnvöldum er svo uppsigað við, eru allir tengdir Fethullah Gülen, tyrkneskum stjórnarandstæðingi sem árum saman hefur verið í sjálfskipaðri útlegð í Bandaríkjunum. Gülen er 74 ára trúarleiðtogi og rithöfundur, leiðtogi eigin hreyfingar sem boðar hófsaman íslamisma en þykir jafnframt einkennast af persónudýrkun á Gülen sjálfum. Stjórnin í Tyrklandi hefur sakað hreyfinguna um tengsl við hryðjuverk og spillingu. Þingkosningar verða haldnar í Tyrklandi á sunnudaginn. Recep Tayyip Erdogan forseti vonast til þess að sinn flokkur, Réttlætis- og þróunarflokkurinn, nái þá aftur þingmeirihluta. Síðast var kosið til þings í Tyrklandi í júní síðastliðnum og þá missti Réttlætis- og þróunarflokkurinn meirihluta sinn, en þeir fjórir flokkar sem kosnir voru á þing náðu engum árangri í stjórnarmyndunartilraunum. Fyrri ríkistjórn Réttlætis- og þróunarflokksins hefur því setið áfram til bráðabirgða í bráðum hálft ár. Skoðanakannanir benda ekki til þess að eftir kosningarnar á sunnudag verði möguleikar á stjórnarmyndun orðnir neitt skárri. Réttlætis- og þróunarflokkurinn hefur í meira en áratug setið einn að völdum, um tíma með nægan meirihluta til að geta breytt stjórnarskránni á eigin spýtur. Núna væri eini möguleiki hans á tveggja flokka stjórn samstarf við helsta andstæðing sinn, gamla Lýðveldisflokkinn sem lengst af var öflugasti flokkur landsins. Samkvæmt skoðanakönnunum hefur fylgi Réttlætis- og þróunarflokksins minnkað eitthvað en fylgi Lýðveldisflokksins styrkst svolítið, en þær breytingar skipta ekki sköpum. Hvorugur stóru flokkanna er áfjáður í stjórnarsamstarf með hægri þjóðernissinnum, og hvorugur er heldur áfjáður í samstarf með flokki Kúrda. Þess vegna hafa stjórnarmyndunarviðræður engu skilað og ekki sjáanlegt að kosningarnar á sunnudag breyti þar miklu. Sjálfur var Erdogan kosinn forseti á síðasta ári, eftir að hafa verið forsætisráðherra í rúman áratug. Hann var einnig leiðtogi Réttlætis- og þróunarflokksins frá stofnun árið 2001, en sagði af sér flokksformennskunni daginn áður en hann tók við forsetaembættinu í ágúst árið 2014. Baráttan gegn KúrdumÁsakanir um stuðning stjórnarinnar við Íslamska ríkið í Sýrlandi tengjast spennu milli stjórnarinnar og Kúrda, sem hafa áratugum saman barist fyrir viðurkenningu stjórnvalda. Réttindi þeirra hafa verið fótum troðin í Tyrklandi allt þar til á síðustu árum, þegar samið var um vopnahlé og stjórn Erdogans gaf að nokkru eftir og veitti Kúrdum aukin réttindi. Helst vilja Kúrdar stofna sjálfstætt ríki Kúrda, Kúrdistan. Hálfgildings sjálfstæði Kúrdahéraðanna í Írak og í Sýrlandi vekur ótta tyrknesku stjórnarinnar, sem þess vegna hefur verið treg til að styðja Kúrda gegn Íslamska ríkinu.Þegar átökin við Íslamska ríkið stóðu sem hæst í sumar leituðu Tyrkir á náðir NATO og fengu þar stuðning við baráttu sína gegn hryðjuverkamönnum, en hafa til þessa notfært sér það meira til árása á Kúrda en til að berjast gegn Íslamska ríkinu.
Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Þrír handteknir fyrir rán Innlent Fleiri fréttir Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Sjá meira