Verulegt tekjutap er þegar orðið staðreynd Svavar Hávarðsson skrifar 29. október 2015 07:00 Þessi seiði eru aðeins gramm að þyngd og áttu eftir að tuttugufalda þyngd sína áður en þau voru send til laxalúsaáts í færeyskum sjókvíum. mynd/agnar
Það skýrist á næstu vikum hvort framhald verður á samstarfsverkefni Tilraunastöðvar Hafrannsóknastofnunar í Grindavík og Stofnfisks ehf., við að ala hrognkelsaseiði fyrir færeysk laxeldisfyrirtæki. Verulegt tekjutap á þessu ári er þó staðreynd. Matvælastofnun greindi frá því fyrir helgi að veira sem veldur sjúkdómnum veirublæði hafi greinst í innyflum hrognkelsa úr Breiðafirði sem nýtt voru til undaneldis á seiðum sem flytja átti til Færeyja til þjónustu við þarlent laxeldi. Seiðin eru notuð til aflúsunar á laxi í sjókvíum, en reynslan sýnir að seiðin éta gríðarlegt magn af laxalús, sem er viðvarandi vandamál í færeysku sjókvíaeldi á laxi. Verkefnið hófst í fyrra og höfðu samningar verið endurnýjaðir um frekara eldi og sölu. Agnar Steinarsson, sérfræðingur hjá Hafrannsóknastofnun, segir enn þá óvíst hvað sýkingin þýði en of snemmt sé að tala um hvaða upphæðir er um að ræða, og samningsatriði hvernig tjóninu verður deilt á milli íslenskra og færeyskra aðila.Agnar Steinarsson, sérfræðingur hjá Hafrannsóknastofnun„Það er þó ekkert víst að seiðaeldi fyrir Færeyinga sé fyrir bí. Það hefur enn þá ekkert greinst í seiðum sem voru send út til Færeyja né heldur í eldisfiski. Ef ekkert greinist hjá þeim þá þurfa þeir ekki að fara út í það að slátra hrognkelsum eða snemmslátra laxi. Það er reyndar langsótt að þetta smitist á milli tegunda, auk þess hafa aldrei orðið afföll út af þessari veiru í laxeldi,“ segir Agnar og bætir við að þrátt fyrir allt séu seiðin eina lausnin á lúsavandamálinu sem er gríðarlegt vandamál í færeysku laxeldi. Þetta áfall er því bein ávísun á að aftur þurfa Færeyingar að meðhöndla sjókvíalax með lyfjum. Því fylgir bæði mikill kostnaður auk álitamála um umhverfismál samhliða lyfjagjöfinni. Agnar segir að aldrei hafi sést nein ytri einkenni á fiskinum og engin afföll hafi orðið af völdum veirunnar. „Við höfum þó fargað öllum hrognkelsum og hrognum sem voru eftir í stöðinni og erum núna í sótthreinsunarferli. Þetta mál sýnir okkur að villtur fiskur getur borið með sér sjúkdómsvalda þó að hann sýni engin sjúkdómseinkenni. Ekki hefur verið leitað að þessari veiru í villtum íslenskum fisktegundum en í stórri norskri rannsókn kom í ljós að að þessi veira finnst í fjölmörgum villtum fisktegundum við Noregsstrendur,“ segir Agnar en allt verklag varðandi villtan klakfisk verður endurskoðað. „Verði framhald á hrognkelsaeldinu þá verður allur villtur klakfiskur hafður í sóttkvíaraðstöðu fjarri öllum eldisstöðvum.“ Veirublæði er alvarlegur smitsjúkdómurVeirublæði er smitsjúkdómur sem greinst hefur í um 80 tegundum fiska um allan heim, algengast þó á norðurhvelinu, bæði í villtu umhverfi og fiskeldi. Litið er á veirublæði sem alvarlegan tilkynningaskyldan smitsjúkdóm sem ber að útrýma með förgun og eyðingu á smituðum fiski. Menn óttast sérstaklega eina af fjórum arfgerðum veirunnar [1a]; hún smitar bæði ferskvatns- og sjávarfiska. Aðrar arfgerðir veirunnar greinast fyrst og fremst í sjávartegundum og smita sjaldnast ferskvatnstegundir á borð við laxfiska. Svo hægt sé að staðfesta arfgerð þeirrar veiru sem greindist í íslenskum hrognkelsum verða sýni send til rannsóknastofu ESB í veirusjúkdómum lagardýra í Danmörku. Niðurstöðu er að vænta um mánaðamótin.
Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Fleiri fréttir Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Sjá meira