CCP selur White Wolf vörumerkið Samúel Karl Ólason skrifar 29. október 2015 14:40 Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri CCP. Mynd/CCP
Sænska tölvuleikjafyrirtækið Paradox Interactive hefur keypt White Wolf Publishing af CCP sem og vörumerki þess. Má þar telja World of Darkness, The Masquerade og Werewolf: The Apocalypse. White Wolf mun starfa sem sjálfstæð deild innan Paradox. „Við á hjá CCP berum mikla virðingu fyrir vörumerkjum White Wolf og þeim samfélögum sem þeim tengjast, og því var það okkur gríðarlega mikilvægt að það fyrirtæki sem tæki við vörumerkjum White Wolf deildi með okkur þessari aðdáun og skilning. Við vitum að með því að setja vörumerki White Wolf í hendur Paradox eru þau í góðum höndum,“ segir Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri CCP í tilkynningu frá fyrirtækinu. CCP keypti White Wolf árið 2006. Skömmu eftir það hófst vinna að fjölspilunarleiknum World of Darkness. Framleiðslu leiksins var þó hætt í apríl í fyrra. White Wolf hefur lengi gefið út hlutverkaspil, bækur, tölvuleiki og fleira sem byggja á heiminum World of Darkness, þar sem vampírur ráða ríkjum.
Leikjavísir Tengdar fréttir CCP segir upp 56 manns í Atlanta Hætta framleiðslu á tölvuleiknum World of Darkness. 14. apríl 2014 15:59 CCP gleypir þekktan bandarískan leikjaframleiðanda Íslenska tölvuleikjafyrirtækið CCP hf., sem framleiðir og selur EVE Online, og bandaríska útgáfufélagið White Wolf Publishing, Inc. tilkynntu sameiningu fyrirtækjanna um helgina. Fyrirtækin halda starfsemi sinni áfram undir óbreyttum nöfnum, en bandaríska fyrirtækið verður rekið sem dótturfyrirtæki CCP. Hilmar Pétursson, framkvæmdastjóri CCP, verður forstjóri og stjórnarformaður fyrirtækjanna. Í sameiginlegri tilkynningu félaganna segir að við sameininguna verði til stærsta fyirrtæki heims á sviði sýndarheima, eða Virtual Worlds, sem sé nýtt skemmtanaform, aðskilið frá hefðbundnum tölvuleikjum. 13. nóvember 2006 03:56 Nýr vampíru- og varúlfaleikur í bígerð Íslenski tölvuleikjaframleiðandinn CCP hefur í bígerð nýjan fjölspilunarleik, sem mun hljóta heitið World of Darkness. Leikurinn verður unninn í samvinnu við bandaríska leikjafyrirtækið White Wolf, sem CCP sameinaðist á seinni hluta síðasta árs. 10. febrúar 2007 08:00 Mest lesið „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Lífið Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Menning Rassaumhirða karla í sókn Lífið Góð tannheilsa styður við betra líf: Kristjana Ben tannlæknir gefur ráð Lífið samstarf Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Áhugi leshringja svo mikill að Salka stækkar Lífið samstarf Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Menning Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Lífið Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Fleiri fréttir 007 First Light: Bond hefur aldrei verið betri Laufey fær eigin God of War leik Geralt fær nýtt ævintýri rúmum áratug eftir það síðasta Fyrsti leikur Vitar Games fær góðar undirtektir Sjá meira
CCP segir upp 56 manns í Atlanta Hætta framleiðslu á tölvuleiknum World of Darkness. 14. apríl 2014 15:59
CCP gleypir þekktan bandarískan leikjaframleiðanda Íslenska tölvuleikjafyrirtækið CCP hf., sem framleiðir og selur EVE Online, og bandaríska útgáfufélagið White Wolf Publishing, Inc. tilkynntu sameiningu fyrirtækjanna um helgina. Fyrirtækin halda starfsemi sinni áfram undir óbreyttum nöfnum, en bandaríska fyrirtækið verður rekið sem dótturfyrirtæki CCP. Hilmar Pétursson, framkvæmdastjóri CCP, verður forstjóri og stjórnarformaður fyrirtækjanna. Í sameiginlegri tilkynningu félaganna segir að við sameininguna verði til stærsta fyirrtæki heims á sviði sýndarheima, eða Virtual Worlds, sem sé nýtt skemmtanaform, aðskilið frá hefðbundnum tölvuleikjum. 13. nóvember 2006 03:56
Nýr vampíru- og varúlfaleikur í bígerð Íslenski tölvuleikjaframleiðandinn CCP hefur í bígerð nýjan fjölspilunarleik, sem mun hljóta heitið World of Darkness. Leikurinn verður unninn í samvinnu við bandaríska leikjafyrirtækið White Wolf, sem CCP sameinaðist á seinni hluta síðasta árs. 10. febrúar 2007 08:00