Glamour

Stuð og stemming í bleiku tískuboði

Ritstjórn skrifar
Bleika boðið fór fram með pompi og pragt á Listasafni Ísland þann 1. október síðastliðinn. Kvöldið var glæsilegt í alla staði þar sem um 1500 manns komu saman til að hrinda af stað bleikum október. Bleika slaufan 2015 var kynnt en kvöldið var samstarfsverkefni Bleiku slaufunnar, Bestseller og L´Oréal. 

Páll Óskar, Glowie, Íslenski Dansflokkurinn, Sirkus Íslands, Bryndís Ásmundsdóttir og Amabadama voru meðal þeirra sem komu fram en aðalatriði kvöldisins var tískusýning frá búðum Bestseller á Íslandi; Vero Moda, Vila, Selected, Name it og Jack&Jones. 

Haust-og vetrartískan rúllaði á tískupallinum og fengu gestir meðal annars forsmekk á því sem koma skal fyrir jólin. 

Leyfum myndunum að tala sínu máli en myndasafnið í heild sinni má finna neðst í fréttinni. 

 
Vila

Nýtt Glamour er komið í allar helstu verslanir - tryggðu þér eintak!
Fylgstu með Glamour á Instagram og á Facebook.
Páll Óskar
Vila tískusýning
Jack and Jones
Vero Moda
Name it
Selected
Bryndís Ásmundsdóttir tók lagið.





×