Formúla 1

Bílskúrinn: Sögur frá Singapúr

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Ferrari liðið fagnar góðum árangri í keppninni.
Ferrari liðið fagnar góðum árangri í keppninni. Vísir/Getty
Sebastian Vettel vann á Ferrari, Lewis Hamilton hætti keppni á Mercedes og titilbarátta ökumanna lifnaði við. Keppnin í Singapúr var viðburðarík og skemmtileg.

Farið verður yfir þetta og fleira í Bílskúrnum, uppgjöri hvers kappaksturs hér á Vísi.

Nico Rosberg er hér kominn fram úr Lewis Hamilton eftir að bíll Bretans missti afl.Vísir/Getty
Martraðir Mercedes

Mercedes liðið hefur hingað til verið lang sterkasta liðið. Síðan nýju vélarnar voru kynntar til leiks við upphaf árs 2014 hefur enginn átt alvöru möguleika á að skáka Mercedes.

Í Singapúr var þó aðeins annað uppi á teningnum. Ferrari og Red Bull gerðu sig líkleg til árangurs strax á æfingum. Tveir fljótustu mennirnir í tímatökunni, Sebastian Vettel á Ferrari og Daniel Ricciardo á Red Bull höfðu báðir orð á því að þeir höfðu gert ráð fyrir meiri keppni frá Mercedes. Þeir héldu eins og svo margir að Mercedes væri ekki í vandræðum heldur væri liðið einfaldlega að beita herkænsku.

Allt kom fyrir ekki, hið almáttuga Mercedes lið hrapaði af himnum og ökumenn þess höfnuðu í fimmta og sjötta sæti á ráslínu. Ekki tók betra við í keppninni sjálfri. Hamilton hætti keppni eftir að bíllinn missti afl. Nico Rosberg kom í mark í fjórða sæti og náði í 12 mikilvæg stig.

Japanski kappaksturinn fer fram næstu helgi. Þá kemur í ljós hvort erfiðleikar Mercedes liðsins voru bundnir við eina braut eða hvort þetta ástand mun vara eitthvað lengur.

Arrivabene er myndarlegur maður en hvort það sé æskilegt að hann fari að bera sig mikið, dæmir hver fyrir sig.Vísir/getty
Er nektarhlaup á dagskrá Arrivabene?

Maurizio Arrivabene, liðsstjóri Ferrari kallaði það jafngildi þess að verða heimsmeistari að vinna þrjár keppnir á tímabilinu. Hann lofaði um leið að hlaupa í skóm einum fata upp brekku sem er við höfuðstöðvar liðsins í Maranello á Ítalíu ef Ferrari ynni fjórar keppnir. Nú er svo komið að Ferrari hefur unnið þrjár keppnir.

Ef Mercedes heldur áfram uppteknum hætti í Japan þá er ansi líklegt að Arrivabene þurfi að fara að finna hlaupaskóna. Ætli formið sem Ferrari sýndi í Singapúr sé raunveruleg staða gagvart Mercedes? Orðið á þjónustusvæðinu er að nýja uppfærslan á Ferrari vélinni geri hana jafn öfluga nýjustu Mercedes vélinni. Ef rétt reynist má gera ráð fyrir spennandi keppnum á næstunni.



Hulkenberg endaði á varnarvegg, reykurinn er úr dekkjum og bremsum.Vísir/Getty
Nico Hulkenberg gegn Felipe Massa

Fyrri öryggisbíllinn kom út í kjölfar áreksturs Nico Hulkenberg og Felipe Massa þegar sá síðarnefndi var að koma út af þjónustusvæðinu. Þeir ætluðu að vera á sama fermetranum á brautinni á sama tíma. Það gengur ekki upp.

Hulkenberg hefur fengið úthlutað refsingu í kjölfarið, þrátt fyrir að atvikið hafi bunið enda á keppni hans. Hann verður færður aftur um þrjú sæti á ráslínu í Japan. Massa þurfti að koma inn á þjónstusvæðið aftur og fá ný dekk því loft tók að leka úr einu þeirra sem var undir við höggið.

Dómarar keppninnar mátu atvikið þannig að Hulkenberg hefði átt að gera ráð fyrir að Massa væri við hlið sér, enda var Massa kominn að minnsta kosti með hálfan sinn bíl samsíða bíl Hulkenberg.

Max Verstappen var vægast sagt sprækur um helgina.Vísir/Getty
Maður keppninnar

Max Verstappen, já það er engin ástæða til að byggja upp spennu. Fyrir þá sem horfðu á keppnina ætti þetta að vera augljóst. Verstappen sat eftir í ræsingu, bíllinn drap á sér. Honum var ýtt inn á þjónustusvæðið og þar var hann endurræstur. Þá var hann orðinn rúmum hring á eftir öllum.

Ökumaðurinn ungi tók sig til og keyrði eins og bíllinn gat borið hann og endaði í áttunda sæti. Einu sæti á undan liðsfélaga sínum hjá Toro Rosso, Carlos Sainz. Verstappen sannaði um á sunnudaginn hið fornkveðna, að maður á aldrei að gefast upp.

Undir lok keppninnar eltu Toro Rosso menn Sergio Perez á Force India. Verstappen var á undan Sainz á slitnari dekkjum. Verstappen var beðinn um að hleypa Sainz fram úr í talstöðinni, svo Sainz gæti reynt að taka fram úr Perez. Svar táningsins var einfalt: „Nei“.

Eftir keppnina tók Franz Tost, keppnisstjóri Toro Rosso hlið Verstappen og sagði að Sainz hefði aldrei komist nógu nálægt til að réttlætanlegt hefði verið að hleypa honum fram úr. Verstappen útskýrði viðbrögð sín þannig að pabbi hans hefði sagt honum að ef hann færi að hleypa fólki fram úr þá myndi hann aldrei skapa sér virðingu meðal annarra ökumanna.

Rosberg var rólegur eftir að Hamilton hætti.Vísir/Getty
Nico Rosberg minnkar muninn

Meðan Hamilton sat í bílskúrnum keyrði Rosberg hring eftir hring og kom í mark í fjórða sæti. 12 stig í hús og munurinn minnkar í 41 stig. Hamilton er efstur í stigakeppni ökumanna með 252 stig og Rosberg næstur með 211. Vettel tók stærstu sneiðina úr forystu-köku Hamilton.

Vettel er 49 stigum á eftir breska ökumanninum með 203 stig. Liðsfélagi hans, Kimi Raikkonen rekur lest þeirra sem enn geta orðið heimsmeistarar með 107 stig.

Rosberg er þá ennþá næstur að taka við ef Hamilton missir mikið fleiri stig. Það gefur þó auga leið að ef vandræði Mercedes eru komin til að vera er Vettel líklegur senuþjófur.


Tengdar fréttir

Pastor Maldonado áfram hjá Lotus 2016

Lotus liðið hefur staðfest að Pastor Maldonado haldi sæti sínu hjá liðinu á næsta ári. Enn er óvíst hver verður liðsfélagi hans.

Vettel: Við verðum á útopnu héðan í frá

Sebastian Vettel ók örugglega í dag og var aldrei ógnað. Hann stjórnaði bilinu á milli sín og Daniel Ricciardo að því er virtist auðveldlega. Hver sagði hvað eftir keppnina?

Sebastian Vettel vann í Singapúr

Sebastian Vettel á Ferrari kom fyrstur í mark. Daniel Ricciardo varð annar á Red Bull og Kimi Raikkonen þriðji á Ferrari. Lewis Hamilton hætti keppni.

Wolff: Við tókum risavaxið skref aftur á bak

Sebastian Vettel náði sinum fyrsta ráspól fyrir Ferrari í Singapúr. Þetta er einn mikilvægasti ráspóll ársins, enda erfitt að taka fram úr. Hver sagði hvað eftir tímatökuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×