Lewandowski með fimm mörk á níu mínútum | Jafnaði met Atla Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. september 2015 19:49 Robert Lewandowski fagnar í kvöld. Vísir/Getty
Pólski framherjinn Robert Lewandowski afgreiddi Wolfsburg á ótrúlegum níu mínútna kafla í leik liðanna í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Bayern München vann leikinn 5-1 eftir ótrúlegan seinni hálfleik. Robert Lewandowski, sem kom inná sem varamaður í hálfleik, skoraði fimm mörk á aðeins níu mínútna kafla. Frammistaða hans fer heldur betur í sögubækurnar. Lewandowski setti met með því að verða fyrsti varamaðurinn til að skora fimm mörk í sögu þýsku úrvalsdeildarinnar auk þess að vera fyrsti útlenski leikmaðurinn til að skora fimm mörk í einum leik síðan að Atli Eðvaldsson náði því árið 1983. Bayern München lenti 1-0 undir eftir 26 mínútna leik og þannig var staðan þar til að Lewandowski tók til sinna ráða í seinni hálfleiknum. Lewandowski kom inná í hálfleik í stöðunni 1-0 og skoraði jöfnunarmarkið sex mínútum síðar. Eftir aðeins þrjár mínútur og 22 sekúndur var hann búinn að skora tvö til viðbótar og innsigla þrennuna. Hann var hinsvegar hvergi nærri hættur og bætti við tveimur mörkum á næstu fimm mínútum. Það þýddi að Lewandowski var búinn að skora fimm mörk á aðeins níu mínútum. Daniel Caligiuri kom Wolfsburg í 1-0 á 26. mínútu og það leit út fyrir það í hálfleik að þetta yrði mikið basl fyrir Bayern í kvöld. Annað kom þó á daginn. Robert Lewandowski hefur nú skorað átta mörk í fyrstu fimm leikjum Bayern München í þýsku deildinni á tímabilinu.
Þýski boltinn Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Hansen með gylliboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Njarðvík sagði upp samningi við Smit Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Freyr að eignast markakóng eftir enn einn sigurinn Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Góður sigur stráka Sigga Ragga í lokaleiknum Gylfi tekur við Víkingi Sjá meira