Heimsfriðurinn æfir með Lakers Kristinn Páll Teitsson skrifar 10. september 2015 08:30 Metta World Peace eða Pönduvinurinn eins og hann vildi kalla sig um tíma. Vísir/Getty
Leikmaðurinn Metta World Peace æfir þessa dagana með liði Los Angeles Lakers í NBA-deildinni en talið er að hann muni skrifa undir eins árs samning hjá félaginu á næstu dögum World Peace, Ron Artest eða The Pandas Friend, hvað sem fólk kallar hann, gæti því snúið aftur til liðsins þar sem hann vann sinn eina meistaratitil á ferlinum vorið 2010. Hefur hann verið á flakki undanfarin ár eftir að hafa yfirgefið Lakers en hann lék með New York Knicks í hálft ár, Sichuan Blue Whales í Kína í eitt tímabil og Pallacanestro Cantú í ítölsku deildinni í hálft tímabil. Hinn 35 árs gamli World Peace æfði með Julius Randle, vali Lakers í nýliðavalinu fyrir einu ári síðan, í sumar til þess að bæta leik Randle en samkvæmt heimildarmönnum Yahoo Sports vonast forráðamenn Lakers til þess að hann sé búinn að róast niður og geti hjálpað ungum leikmannahóp Lakers í vetur. Artest er hvað frægastur fyrir aðild sína að slagsmálunum sem áttu sér stað í leik Indiana Pacers og Detroit Pistons árið 2004 þegar hann var leikmaður Indiana. Réðst Artest ásamt liðsfélögum sínum á áhorfenda og leikmenn Pistons en Artest fékk eins árs bann fyrir aðild sína að málinu.
NBA Mest lesið Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport KR-ingar bikarmeistarar eftir stjörnuhrap í Smáranum Körfubolti Missir af Ólympíuleikunum af því að móður hennar var rænt Sport Sjáðu Dag Sig taka „Purple Rain“ með Prince á rafmagnsgítar Handbolti Arnór fékk allt greitt frá Rússunum og saknar landsliðsins Fótbolti Búast við yfir tuttugu og sex milljón meldingum um veikindi Sport Risa sigur fyrir Leeds United Enski boltinn Brunaði niður brekkuna viku eftir að hafa slitið krossband Sport United fagnaði fjórða sigrinum í röð Enski boltinn Keppandi Suður-Kóreu á Ólympíuleikunum fæddist á Íslandi Sport Fleiri fréttir Tryggvi var framlagshæstur þegar sigurgangan hélt áfram Martin missir af landsleikjunum Elvar var stiga- og stoðsendingahæstur í sigri Jakob: Geggjað að fá þennan stuðning frá okkar fólki Stjörnumenn svekktir eftir leik: „Enginn í okkar liði átti A-klassa frammistöðu“ „Við ætlum að skemmta okkur í kvöld“ Leik lokið: Keflavík - Grindavík 92-83 | Keflavík bikarmeistari eftir sigur á Grindavík KR-ingar bikarmeistarar eftir stjörnuhrap í Smáranum „Við erum ekkert að einbeita okkur að því og ætlum bara að taka leikinn“ Segir íslensk félög búin að eyða meira en milljarði í erlenda leikmenn í vetur Segir Grikkjanum haldið í gíslingu Fórnuðu Luka Doncic fyrir hann en Davis náði aðeins að spila 31 leik „Spiluðum virkilega vel í tuttugu mínútur“ „Þá er þetta munurinn á liðunum“ Uppgjörið: Tindastóll - Grindavík 74-99 | Grindavík eltir Keflavík í úrslit Martin með ellefu stig í magnaðri endurkomu Alba Berlin Uppgjörið: Keflavík - Hamar/Þór 82-77 | Keflvíkingar í bikarúrslit Fær að mæta KR í úrslitum þrátt fyrir hnefahöggið „Við þekkjum umhverfið allavega betur“ James Harden skipt til Cleveland og titillíkur Cavaliers aukast „Vitum hvernig Stjarnan spilar“ Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 107-110 | Stjarnan í úrslit eftir háspennu í framlengdum leik KR - Tindastóll 85-87 | KR-ingar í úrslit eftir háspennu „Byrjunin verður gríðarlega mikilvæg“ „Þeir setja pressu á alla og gera allt óþægilegt“ KR-ingur að fara á kostum með einu besta körfuboltaliði Bandaríkjanna Stólarnir fóru bara allir í fýlu saman og það er óafsakanlegt Körfuboltaþjálfari leiddur af velli í handjárnum Kveður Skagafjörðinn og flytur á Skagann Martin fagnaði mikilvægum sigri eftir mistök toppliðsins Sjá meira