Laun starfsmanna sveitarfélaga hækkuðu um 11% Sæunn Gísladóttir skrifar 15. september 2015 10:09 Tónlistarkennarar í kröfugöngu á síðasta ári. Vísir/Ernir Eyjólfsson
Laun starfsmanna sveitarfélaga hækkuðu um 11% á öðrum ársfjórðungi 2015, samanborið við árið á undan. Þetta er meira en tvöföld hækkun miðað við laun starfsmanna á almennum vinnumarkaði sem hækkuðu um 4,8%. Regluleg laun voru að meðaltali 1,7% hærri á öðrum ársfjórðungi 2015 en á ársfjórðungnum á undan. Árshækkun frá öðrum ársfjórðungi 2014 var 5,7% að meðaltali, hækkunin, þar af 7,8% hjá opinberum starfsmönnum. Laun ríkisstarfsmanna hækkuðu um 5,1%. Þessu greinir Hagstofan frá. Laun þjónustu-, sölu- og afgreiðslufólks hækkuðu mestFrá fyrri ársfjórðungi var hækkun reglulegra launa eftir starfsstétt á bilinu 0,8% til 3,3%. Laun þjónustu-, sölu- og afgreiðslufólks hækkuðu mest en laun iðnaðarmanna minnst milli ársfjórðunga. Árshækkun frá öðrum ársfjórðungi 2014 var mest hjá þjónustu-, sölu- og afgreiðslufólki eða um 6,8% en minnst hjá iðnaðarmönnum eða um 2,7%. Á sama tíma hækkuðu regluleg laun tækna og sérmenntaðs starfsfólks um 6,3%, skrifstofufólks um 5,4%, verkafólks um 4,9%, sérfræðinga um 4,4% og stjórnenda um 3,3%. Frá fyrri ársfjórðungi mældist hækkun reglulegra launa mest í atvinnugreinunum samgöngum og flutningum annars vegar og verslun og viðgerðarþjónustu hins vegar. Í þessum atvinnugreinum hækkuðu regluleg laun um 2,7% frá fyrri ársfjórðungi. Á sama tímabili hækkuðu laun um 1,7% í byggingarstarfsemi, 1,3% í iðnaði og 0,8% í fjármálaþjónustu. Árshækkun frá öðrum ársfjórðungi 2014 var mest í samgöngum eða um 7,0% en minnst í fjármálaþjónustu eða um 3,7%.Kjarsamningarhafa áhrif á vísitölu launaÍ vísitölu launa á öðrum ársfjórðungi 2015 gætir áhrifa tvennra kjarasamninga Kennarasambands Íslands við fjármálaráðherra, fyrir hönd ríkissjóðs og Samband íslenskra sveitarfélaga frá árinu 2014. Þá voru undirritaðir kjarasamningar á milli Samtaka atvinnulífsins og stærstu aðildarfélaga Alþýðusambands Íslands þann 29. maí síðastliðinn. Áhrifa þeirra samninga gætir í vísitölu launa á öðrum ársfjórðungi en þau koma þó ekki að fullu fram fyrr en á þriðja ársfjórðungi 2015.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira