Jólatónleikar Baggalúts skila líklega nærri hundrað milljónum í tekjur ingvar haraldsson skrifar 16. september 2015 07:45 Uppselt var á alla þrettán jólatónleika Baggalúts um síðustu jól. vísir/ernir
Gera má ráð fyrir að tekjur af jólatónleikum Baggalúts verði hátt í hundrað milljónir á þessu ári. Miðar á sex jólatónleika Baggalúts í Hátíðarsal Háskólabíós, sem tekur 948 í sæti, seldust upp á klukkustund í gærmorgun. Litlu virðist skipta þó miðaverðið hafi hækkað um þúsund krónur milli ára og sé nú 7.990 krónur. Baggalútur hefur þegar tilkynnt um að fimm tónleikum verði bætt við og mun miðasala á þá hefjast í dag. Garðar Þorsteinn Guðgeirsson, stjórnarformaður Baggalúts ehf., gerir ráð fyrir að jólatónleikarnir verði að minnsta kosti jafn margir og í fyrra. Þá léku Baggalútar, hljóðfæraleikarar og leynigestir, alls um 25 manns, fyrir fullu húsi á þrettán tónleikum þar sem gestir voru samtals nærri 12 þúsund. Garðar áætlar að tekjurnar af miðasölunni hafi numið ríflega 70 milljónum króna en fullt verð var 6.990 krónur. Garðar segir að ágóði af sölunni renni nær allur til tónlistarmannanna á sviðinu, lítið verði eftir í Baggalúts-félaginu. Samkvæmt síðasta ársreikningi sem Baggalútur skilaði, fyrir árið 2013, námu tekjur af tónleikahaldi 52,5 milljónum króna. Verktakagreiðslur til tónlistarmanna námu 30 milljónum króna og því er um ágætis vertíðarkaup að ræða fyrir þá sem mest hafa upp úr krafsinu. Annar kostnaður vegna tónleikahaldsins árið 2013, til að mynda vegna leigu á húsnæði, tæknibúnaði og þóknana til Miða.is nam samtals 12 milljónum króna. Hagnaður Baggalúts árið 2013 var 4,7 milljónir króna. Eitt stöðugildi var hjá Baggalúti á árinu og námu laun og launatengd gjöld 3,1 milljón króna. Tekjur af höfundalaunum voru 4,7 milljónir króna. Árið 2013 gaf Baggalútur út plötuna Mamma þarf að djamma sem tekin var upp í hinu sögufræga Sound Emporium í Nashville. Bóka- og geisladiskasala samkvæmt ársreikningnum nam 3 milljónum króna á árinu 2013 en kostnaður vegna framleiðslu geisladiska, hönnunar-, upptöku- og ferðakostnaðar vegna upptöku plötunnar nam alls 9 milljónum króna.
Mest lesið Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Viðskipti innlent Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Viðskipti innlent Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Viðskipti innlent Stundum þarf einfaldlega að segja: „Afsakaðu þetta“ Atvinnulíf Umsóknum synjað og kurr í greininni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Sjá meira