Gætu þurft að bíða fram undir jól Lilý Valgerður Pétursdóttir skrifar 1. september 2015 21:23
Ríflega sex hundruð manns bíða eftir því að komast í segulómrannsóknir á Landspítalanum. Sjúklingar gætu þurft að bíða allt til jóla, en biðtíminn hefur lengst úr örfáum vikum í mánuði vegna verkfalla og uppsagna starfsmanna spítalans. Í sumar sögðu um 25 geislafræðingar upp störfum á Landspítalanum vegna kjaradeilu þeirra og ríkisins. Hluti þeirra hefur dregið uppsagnir sínar til baka en í gær létu sautján geislafræðingar af störfum. Það er um fjórðungur þeirra geislafræðinga sem hafa starfað á spítalanum. „Staðan er náttúrulega mjög alvarleg hjá okkur. En við erum að reyna að láta hérna deildina bara ganga og við erum búin að skipuleggja okkur og mannskapurinn er hérna til staðar. Við erum með talsvert af fólki ennþá í vinnu, þannig að þetta gengur ágætlega,“ segir Díana Óskarsdóttir deildarstjóri á röntgendeild Landspítalans. Mikill fjöldi fólks leitar á röntgendeildina á hverjum degi eða á milli fjögur og fimm hundruð manns og hafa verkföll síðustu misseri og nú uppsagnir haft mikil áhrif á starfsemi deildarinnar. „Við þurfum að draga úr þjónustunni með því að bóka færri sjúklinga,“ segir Díana. Bið eftir mörgum rannsóknum hefur lengst mikið. „Lengsta biðin hjá okkur er í til dæmis segulómrannsóknir. Það hefur verið það sem er erfiðast að fylgja eftir í verkfallinu og sumarleyfinu, þar eru ansi margir sem bíða. Við erum með um sex hundruð manns á biðlista,“ segir Díana. Þannig hefur biðin lengst úr örfáum vikum í mánuði eftir að verkföll hófust hjá heilbrigðisstarfsfólki. „Þá voru þetta kannski einhverjar þrjár, fjórar vikur í mesta lagi, en núna er þetta eitthvað fram undir jól,“ segir Díana. Stjórnendur spítalans telja sig hafa komið til móts við kröfur geislafræðinga. Þeir vonast til að sem flestir þeirra sem hafa látið af störfum snúi aftur til baka. Díana segir áhrifin á spítalann verða mikil ef geislafræðingarnir sautján snúa ekki aftur til starfa. „Það mun hafa alvarleg áhrif á starfsemina. Það hægir á öllu hjá okkur en við munum leita allra ráða til þess að manna í þær stöður sem við þurfum að fá mannskap í,“ segir Díana Óskarsdóttir.
Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Fleiri fréttir Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Sjá meira