Bara Norðlendingar í jarðvinnu á Bakka Kristján Mår Unnarsson skrifar 7. september 2015 01:29
Það eru nær eingöngu Norðlendingar sem annast jarðvegsvinnu vegna kísilversins á Bakka og verktakinn er sjálfur frá Ólafsfirði. Þessu komst Kristján Már Unnarsson að þegar hann tók púlsinn á framkvæmdunum. Það var í byrjun maímánaðar sem fyrstu undirbúningsframkvæmdir hófust á iðnaðarlóðinni á Bakka. Aðalverktakinn í jarðvinnunni, Árni Helgason frá Ólafsfirði, mætti svo með sinn mannskap á svæðið í byrjun júlímánaðar, 15 karla af Norðurlandinu, eins og hann orðar það. Spurður hvaðan starfsmennirnir séu svarar Árni að þeir séu frá Ólafsfirði, Akureyri og Húsavík. Árni vill þó ekki játa því að það sé meðvituð stefna að ráða eingöngu Norðlendinga til vinnu. Hann segir heimamenn á Húsavík sýna verkinu mikinn áhuga, margir komi og aki framhjá og fylgist með. "Það er bara ánægjulegt að þetta sé loksins byrjað. Menn eru búnir að bíða eftir þessu í 10-15 ár," segir Árni. Stefnt er að því að steypuvinna við undirstöður verksmiðjunnar hefjist eftir næstu áramót. Jarðvegsvinnan nú er aðeins forsmekkurinn að því sem koma skal. Búast má við þvi að 400 manns vinni á svæðinu næsta og þar næsta sumar en verksmiðjan á svo að taka til starfa fyrir árslok 2017.
Mest lesið Lægri tollar á samkeppnisríkin veiki stöðuna svo um munar Viðskipti innlent Slugsagjöldin „neyðarúrræði“ og „ekki til að græða“ Neytendur Óskar eftir starfslokum Viðskipti innlent Stækka hótelveldið á Suðurlandi Viðskipti innlent Íslensku KFC-feðgarnir í Danmörku gjaldþrota Viðskipti erlent Skilur ekkert í stjórnvöldum að hafa ekki stöðvað „græðgisvæðingu“ í bílastæðamálum Viðskipti innlent Borið á kvörtunum undan leigubílstjórum Neytendur Almannatenglar stofna fjölmiðil Viðskipti innlent Atvinnuleysi eykst hægt með lækkandi sól Viðskipti innlent Fleiri ferðamenn og fleiri utanlandsferðir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lægri tollar á samkeppnisríkin veiki stöðuna svo um munar Atvinnuleysi eykst hægt með lækkandi sól Almannatenglar stofna fjölmiðil Lánshæfið hækkar úr stöðugu í jákvætt Fleiri ferðamenn og fleiri utanlandsferðir Skilur ekkert í stjórnvöldum að hafa ekki stöðvað „græðgisvæðingu“ í bílastæðamálum Stækka hótelveldið á Suðurlandi Óskar eftir starfslokum „Ekkert Viking eða Gull“ á nýjum stað í B5 Segir ofboðslegan undirliggjandi þrýsting á fasteignamarkaði Reikna með að skila hagnaði á næsta ári Frá Gamma til Arctica og nú Seðlabankans Atvinnuleysi 2,8 prósent í júní Trump-tollarnir hafa tekið gildi Ísland klemmist á milli í alþjóðlegu tollastríði Vonbrigði með makrílinn en síldin og loðnan veki von Ráðin framkvæmdastjóri Magio – viðburðasmiðju Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Forstjóraskipti hjá Ice-Group Kísiltollar gætu vel endað fyrir gerðardómi Hvalur hf. stefnir íslenska ríkinu Arion hagnaðist um tíu milljarða á öðrum fjórðungi Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Festi hagnast umfram væntingar Þota Play komin úr viðgerð eftir skemmdir vegna hagléls Evrópa verði upp á Kína komin verði af tollunum Sjá meira
Skilur ekkert í stjórnvöldum að hafa ekki stöðvað „græðgisvæðingu“ í bílastæðamálum Viðskipti innlent
Skilur ekkert í stjórnvöldum að hafa ekki stöðvað „græðgisvæðingu“ í bílastæðamálum Viðskipti innlent