Segja afnám tolla mikilvægt skref Samúel Karl Ólason skrifar 9. september 2015 13:17 Vísir/Vilhelm
Stjórn Samtaka verslunar og þjónustu fagnar því að gert sé ráð fyrir afnámi tolla í áföngum í fjárlagafrumvarpinu. Fyrst með afnámi tolla á fötum og skóm um næstu áramót og svo öðrum vörum en matvörum um áramótin 2016-2017. „SVÞ hefur um langa hríð bent á þá óhagstæðu samkeppnisstöðu sem greinin býr við og hafa tollar vegið þungt í því sambandi. Afnám vörugjalda um s.l. áramót var fyrsta alvöruskrefið sem stigið hefur verið, a.m.k. um árabil, í því skyni að jafna samkeppnisstöðu greinarinnar.“ Þetta kemur fram í tilkynningu frá SVÞ. Þar segir að þau áform sem birtist í fjárlagafrumvarpinu sýni í verki vilja stjórnvalda til að halda áfram á sömu braut og létta álögum af versluninni. „Neytendur munu þó fyrst og síðast njóta þessara breytinga. Það má ekki gleymast í þessu sambandi að íslensk verslun býr að verulegu leyti við mikla erlenda samkeppni. Sú sam-keppni mun væntanlega aðeins aukast samfara aukinni netverslun. Afnám vörugjaldanna hafði veruleg áhrif til lækkunar neysluverðsvísitölu og það sama mun gerast með afnámi tolla.“ Samtökin telja einnig að nauðsynlegt sé að færa föt og skó einnig í neðra þrep virðisaukaskatts. Það skref þurfi að taka svo að íslensk fataverslun geti keppt á jafnréttisgrundvelli við erlenda fataverslun.
Mest lesið Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Viðskipti innlent Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Viðskipti innlent Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Viðskipti innlent Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Atvinnulíf Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Túnfisksævintýri Íslendinga endar með ósköpum Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent Fleiri fréttir Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Sjá meira