Glamour

Nauðsynjar í fataskápinn

Glamour kynnir skrifar
Glamour/Getty
Nú er vel við hæfi að undirbúa fataskápinn fyrir haustið og tískutrendin sem munu tröllríða verslunum landsins á komandi mánuðum. 

Hér koma nokkur ráð úr nýjasta tölublaði Glamour um hvaða hlutir eru ómissandi til að búa til góðan grunn í skápinn. Allir eiga þeir sameiginlegt að ganga við allt, detta seint úr tísku og hægt að klæða bæði upp og niður eftir hentugleika.

1. Stuttermabolur: Svartur og hvítur stuttermabolur úr góðu efni er nauðsynlegt að eiga í fataskápnum.

2. Leður: Buxur og jakki úr leðri er eitthvað sem dettur seint úr tísku.

3. Kápa: Yfirhöfn í góðu efni er klassísk flík og getur gert kraftaverk fyrir heildarútlitið.

4. Gallabuxur: Góðar gallabuxur eru gulls ígildi var einhvertíma sagt. Við erum sammála því, enda kemst fátt með tærnar þar sem góðar gallabuxur hafa hælana.

5. Hvít skyrta: Það verða allir að eiga eina góða hvíta skyrtu í fataskápnum sem fer vel við gallabuxurnar sem og fínni flíkur. Hægt að poppa upp með réttum fylgihlutum.

6. Leðurstígvél: Hvort sem þau eru með háum hælum eða flatbotna eru leðurstígvél eitthvað sem við notum á hverjum degi yfir vetrartímann og því mikilvægt að vanda valið.

7. Strigaskór: Strigaskótískan hefur tröllriðið öllu undanfarin misseri og er ekkert lát þar á. Um að gera að hafa þægindin í fyrirrúmi og velja sér par sem gengur í vinnuna sem og í afslöppunina um helgar. 

Hér má sjá nokkra góða hluti í fataskápinn sem hægt er að kaupa hér heima frá Skór.is, Topshop, Dorothy Perkins, Warehouse, F&F og Zöru



Nýtt Glamour er komið í allar helstu verslanir - tryggðu þér eintak!

Fylgstu með Glamour á Instagram og á Facebook.






×