Sigurður Magnús nýr framkvæmdastjóri flugrekstrarsviðs WOW air Atli Ísleifsson skrifar 25. ágúst 2015 11:04 Sigurður Magnús Sigurðsson starfaði áður sem flugrekstrarstjóri flugfélagsins Atlanta. Mynd/WOW air
Sigurður Magnús Sigurðsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri flugrekstrarsviðs WOW air. Hann starfaði áður sem flugrekstrarstjóri flugfélagsins Atlanta. Sigurður Magnús tekur við starfinu af Birgi Jónssyni sem lætur af störfum hjá félaginu. Í tilkynningu frá WOW segir að Sigurður hafi fyrst hafið störf hjá Íslandsflugi árið 2003 og unnið hjá flugfélaginu Atlanta frá sameiningu félagana árið 2005. Sigurður hefur gengt starfi flugrekstrarstjóra flugfélagsins Atlanta síðan 2010 en gegndi þar áður starfi yfirmanns áhafnamála. „Sigurður útskrifaðist með B.S. í Air Transport Management frá City University árið 2005 og lauk einnig námi í flugvirkjun í Denver, Colorado árið 2001. Á sama tíma lætur Birgir Jónsson af störfum hjá félaginu. Birgir var ráðinn sem aðstoðarforstjóri og framkvæmdastjóri flugrekstrarsviðs til eins árs og kom hann að margvíslegum stefnumótunar og skipulagsmálum í hröðum vexti félagsins. „Ég þakka Skúla og öllu hinu frábæra fólkinu hjá WOW air kærlega fyrir gott samstarf um leið og ég hlakka til að takast á við ný og spennandi verkefni. Ég kveð vini mína hjá WOW air með stolti og þakklæti yfir að hafa fengið að hafa verið með í þessu ævintýri og hlakka til að sjá félagið blómstra á næstunni“ segir Birgir Jónsson. “Birgir kom til okkar á krefjandi tíma og hefur verið öflugur liðsmaður í hraðri uppbyggingu WOW air. Ég þakka honum fyrir hans góða framlag og óska honum alls hins besta. Einnig vil ég bjóða Sigurð Magnús velkominn í hópinn en hans mikla reynsla af flugrekstri mun nýtast WOW air á fyrirsjáanlegu vaxtarskeiði ” segir Skúli Mogensen forstjóri og stofnandi WOW air.“
Mest lesið Heimsins fyrsti billjónamæringur Viðskipti erlent Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma Atvinnulíf Enn fjölgar aflýsingum Viðskipti innlent Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Viðskipti erlent Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Viðskipti innlent Sögulegri skráningu SpaceX lokið Viðskipti erlent Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Viðskipti innlent Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Viðskipti innlent Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Viðskipti innlent Alvöru þægindi eftir átján holur Samstarf Fleiri fréttir Enn fjölgar aflýsingum Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Sjá meira