Sýndi mjúka hlið með því að fá sér hund ingvar haraldsson skrifar 26. ágúst 2015 15:00 Katrín hafði áður starfað í fimm ár hjá N1. fréttablaðið/stefán
Katrín M. Guðjónsdóttir var í síðustu viku ráðin markaðsstjóri Skeljungs. Katrín hefur mikla reynslu af markaðsmálum en síðustu tvö ár var hún markaðsstjóri Innness og á árunum 2008 til 2013 starfaði hún sem markaðsstjóri N1. Katrín segir að næstu misseri muni felast í að móta framtíðarskref í markaðsmálum og stefnu vörumerkja Skeljungs, á borð við Shell og Orkuna. Katrín segir sín helstu áhugamál vera útivist, samveru með fjölskyldu og vinum og ferðalög en um helgina gekk hún Fimmvörðuhálsinn. Hún segist vera dugleg að fylgja eiginmanni sínum á veiðiferðum. „Ég er aðstoðarmanneskja veiðimannsins og er mjög stolt af því. Ég geri veiðimanninn betri, sem er þá eiginmaðurinn. Ég lít á það sem mjög mikilvægt hlutverk.“ Katrín segir það hafa komið mörgum á óvart þegar hún fékk sér Cocker Spaniel-hund fyrir fjórum árum. „Samstarfsfólki mínu á sínum tíma fannst það mjög út úr karakter að ég væri að fá mér hund. Þarna var ég að sýna mjög mjúka hlið og frekar óvænta miðað við annir. Maðurinn minn starfar hjá Marel og var að ferðast mikið erlendis. Þannig að það var gert svolítið grín að því að ég væri í krefjandi starfi og allt á fullu og að ég væri að fá mér hvolp,“ segir Katrín kímin. Nú sé helst skotið á Katrínu fyrir að þykja jafn vænt um hundinn og börnin sín. Katrín lauk MBA-námi í vor samhliða fullu starfi hjá Innnesi. „Það sem hefur einkennt frítíma minn síðustu tvö ár var MBA-námið svo ég var kannski ekki mjög mikið að gera annað,“ segir hún. Hún segist hafa verið komin stutt í náminu þegar hún var komin í allt markaðsefni fyrir námið. „Vinir mínir gerðu dálítið grín að mér því það einkennir mig svolítið að þegar ég geri eitthvað er ég „all in“ í því. Einn vinur minn sem er svolítill frasakóngur sagði: „Katrín fór í MBA-námið og hún gleypti það“.“
Mest lesið Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent „Alltaf að líða þannig í vinnunni þinni að þú skiptir máli“ Atvinnulíf Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Tekur við sem forstjóri S4S Viðskipti innlent Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Sjá meira