„Nokkuð ljóst að hér hafi einhverjir farið ansi illilega fram úr sér við framkvæmdir“ Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 15. ágúst 2015 18:39 Aldís Hafsteinsdóttir fyrr í sumar. Vísir/Pjetur
Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri Hveragerðis, er ósátt við framkvæmdir sveitarfélagsins Ölfuss inn af Hveragerði. Þótti henni undarlegt þegar hún sá um daginn stærðarinnar plan innst í Ölfusdal en henni var ókunnugt um framkvæmdirnar. Þetta kemur fram á bloggsíðu Aldísar. „Skipulagsmál eru afskaplega vandmeðfarin og því fannst mér harla undarlegt þegar ég sá um daginn að innst í dalnum er núna komið risastórt plan. Ég hef grun um að þarna eigi að rísa fjárrétt Ölfusinga en við Hvergerðingar höfum ekki heyrt neitt um þessa framkvæmd sem hafa mun heilmikil áhrif á þessu svæði. Hvað á þessi rétt að vera stór? Hvað er gerðið stórt og hvar er það? Hvernig á aðkoma að henni að vera? Hvernig er hönnunin? Falleg eins og Hrunarétt eða hálfgert bráðabirgðamannvirki? Hver er vegtengingin og hvernig fer með vaðið? Fjöldi spurninga en engin svör! Sá síðan í fundargerð bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Ölfuss frá því í apríl að það eigi að grenndarkynna fjárrétt fyrir Hveragerðisbæ. Sú grenndarkynning hefur aldrei farið fram og því tel ég nokkuð ljóst að hér hafi einhverjir farið ansi illilega fram úr sér við framkvæmdir,“ skrifar Aldís. Samkvæmt Aldísi verður málið skoðað á næstu dögum en hún fór yfir málið ásamt Guðmundi F. Baldurssyni, skipulags- og byggingarfulltrúa í gær, föstudag.
Mest lesið Enok sakfelldur Innlent Framkoman eftir flogið niðurlægjandi og meiðandi Innlent Fara í saumana á sendiherraskipunum Innlent Einn umdeildasti kennari landsins lætur af störfum Innlent Skoða að hefja gjaldtöku við Gróttu Innlent Ólga meðal íbúa vegna fyrirhugaðra framkvæmda Innlent Stunginn í heimahúsi í Súðavík Innlent Óhollar vörur drepa fjórðung Evrópubúa Erlent Dómsmálaráðherra skammar fjármálaráðherra fyrir afskipti Innlent Sér ekki fyrir sér hvalveiðar í sumar Innlent Fleiri fréttir Pólitísk afskipti ráðherra tilefni til alvarlegra áhyggja Árekstur á Höfðabakkabrú Einn af hverjum fjórum tók ákvörðun á kjördegi Fjölskylda frá Marokkó fær ekki að heimsækja ættingja á Íslandi Einn umdeildasti kennari landsins lætur af störfum Landsbyggðarskattur í formi bílastæðagjalda Dómsmálaráðherra skammar fjármálaráðherra fyrir afskipti Þakklát fyrir spurningar íbúa og varpa nýju ljósi á framkvæmdir Lögregla fámál um húsleit í máli Davíðs Viðarssonar Áfengissalar kvarta undan afskiptum ráðherra af lögreglu Flestir ánægðir með kjör Höllu Tómasdóttur Hrottaleg árás á átján ára mann enn til rannsóknar Bjarkey verði að sæta ábyrgð Bætt skólaeldhús fyrir íslensk fjárframlög Fara í saumana á sendiherraskipunum Enok sakfelldur Ólga meðal íbúa vegna fyrirhugaðra framkvæmda Á þriðja tug mála bíða afgreiðslu og óvissa um frestun þingfunda Vísbendingar um að lúsmýið sé komið á kreik Ákærður fyrir tilraun til manndráps á Ingólfstorgi Framkoman eftir flogið niðurlægjandi og meiðandi Stunginn í heimahúsi í Súðavík Verkjamóttakan hafi dregið verulega úr morfínlyfjanotkun Forsendur ríkisstjórnarinnar hafi verið slegnar af borðinu Dregur úr gasmengun með auknum vindi næstu daga Nektarmyndum fækkar meðal ungmenna Skoða að hefja gjaldtöku við Gróttu Sér ekki fyrir sér hvalveiðar í sumar Yrðu stórtíðindi í íslenskum stjórnmálum ef VG dytti út af þingi Bjarni ferðaðist um Malaví með vélinni sem fórst Sjá meira