Innlent

Ólöf Nordal óákveðin um framtíð sína

Viktoría Hermannsdóttir skrifar
Innanríkisráðherra vill flugvöll í Reykjavík.
Innanríkisráðherra vill flugvöll í Reykjavík. Vísir/Valli
Ólöf Nordal, innanríkisráðherra, útilokar ekki að hún gefi kost á sér til þess að verða varaformaður Sjálfstæðisflokksins á ný. Hún segir að ákvörðunin ráðist af því hvort hún ætli að gefa kost á sér til Alþingis á ný.

Þetta kom fram í þættinum Sprengisandi í morgun þar sem Ólöf var gestur Sigurjóns M. Egilssonar. Hluta af viðtalinu má heyra hér að ofan. Ólöf segist ekki vera búin að taka ákvörðun um það hvort hún fari á ný í framboð eða gefi kost á sér sem varaformaður Sjálfstæðisflokksins á ný á aðalfundi flokksins. Hún sagði að sú ákvörðun yrði al­farið byggð á því hvort hún ætli í fram­boð fyr­ir næstu alþing­is­kosn­ing­ar árið 2017.

Ólöf var vara­formaður Sjálf­stæðis­flokks­ins á ár­un­um 2010 til 2013 en hún ákvað að gefa ekki kost á sér til end­ur­kjörs í alþing­is­kosn­ing­un­um 2013 og hætti sem vara­formaður á lands­fundi í aðdrag­anda þings­kosn­inga. Ólöf sagði líka frá því að hún vildi hafa flugvöllinn áfram í Vatnsmýri. Það sé töluvert eftir í flugvallaumræðunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×