SÍA II kaupir 35 prósenta hlut í Kynnisferðum Atli Ísleifsson skrifar 19. ágúst 2015 17:23 Kynnisferðir var stofnað 1968 og starfa þar rúmlega þrjú hundruð starfsmenn. Stærsti hluti rekstrarins er undir merkjum Reykjavík Excursions. Vísir/Ernir
SÍA II, framtakssjóður í rekstri Stefnis, hefur gengið frá kaupum á 35 prósenta hlut í Kynnisferðum. Seljandi er fjárfestingafyrirtækið Alfa hf. Í fréttatilkynningu segir að samhliða kaupunum komi Steinn Logi Björnsson, forstjóri flugfélagsins Bluebird, og Benedikt Ólafsson, forstöðumaður sérhæfðra fjárfestinga hjá Stefni, inn í stjórn félagsins. Benedikt Ólafsson segir ferðaþjónustu á Íslandi vera í miklum vexti og sé orðin ein mikilvægasta atvinnugrein landsins. „Kynnisferðir eru leiðandi fyrirtæki á sínum markaði og við erum mjög ánægðir með að hafa klárað fjárfestingu í félaginu. Við sjáum frekari tækifæri í rekstri þess á næstu árum og hlökkum til að vinna með öðrum hluthöfum og stjórnendum að framgangi þess.“ Kristján Daníelsson, forstjóri Kynnisferða, segir rekstur Kynnisferða hafa tekið miklum breytingum á liðnum árum og hafi félagið ráðist í umtalsverðar fjárfestingar til að mæta vexti í ferðaþjónustu á Íslandi. „Við munum halda áfram að stækka og efla félagið á komandi árum og töldum því rétt að fá inn nýja hluthafa í félagið á þessum tímapunkti. Við fögnum aðkomu nýrra fjárfesta og teljum að innkoma þeirra muni styrkja félagið verulega til framtíðar.“ Kynnisferðir var stofnað 1968 og starfa þar rúmlega þrjú hundruð starfsmenn. Stærsti hluti rekstrarins er undir merkjum Reykjavík Excursions. SÍA II er framtakssjóður í rekstri Stefnis hf. Hluthafar SÍA II samanstanda af lífeyrissjóðum, fjármálafyrirtækjum og fagfjárfestum. Sjóðir á vegum Stefnis hafa fjárfest fyrir yfir 40 milljarða króna í óskráðum félögum frá árinu 2011.
Mest lesið Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Tekur við sem forstjóri S4S Viðskipti innlent Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Viðskipti innlent Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent „Alltaf að líða þannig í vinnunni þinni að þú skiptir máli“ Atvinnulíf Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Sjá meira