Sænskir grunnskólar taka upp kennsluverkefnið Biophiliu Atli Ísleifsson skrifar 19. ágúst 2015 22:45 Verkefnið byggist á að nota sköpun sem menntunar- og rannsóknaraðferð þar sem náttúruvísindi, tónlist og tækni eru tengd saman á nýstárlegan hátt. Mynd/BIOPHILIA EDUCATIONAL PROJECT
Tveir grunnskólar í Sundsvall verða fyrstir í Svíþjóð til að taka upp kennsluverkefnið Biophilia. Verkefnið byggist á að nota sköpun sem menntunar- og rannsóknaraðferð þar sem náttúruvísindi, tónlist og tækni eru tengd saman á nýstárlegan hátt. Sænska ríkissjónvarpið greinir frá því að íslensk sendinefnd hafi verið að störfum í Sundsvall í vikunni til að kenna kennurum við skólann á Biophiliu. Auður Rán Þorgeirsdóttir, verkefnisstjóri Biophiliu, segir í samtali við SVT að helsti fókus verkefnisins sé að brjóta upp hefðbundnar kennsluaðferðir. „Við viljum vinna þvert á kennslugreinarnar og samtvinnum náttúruvísindi, tónlist og tækni og hvetjum börn til að skapa og vinna með frumkvöðulinn í sjálum sér.“Vilja fá nemendur til að rannsaka hluti frekar Hagaskolan og Höglundaskolan í Sundsvall eru fyrstu skólarnir í Svíþjóð til að taka upp aðferðina, sem miðar meðal annars að því að efla áhuga nemenda á náttúruvísindum. „Við viljum vekja áhuga nemenda og veita þeim sjálfstraust til að rannsaka hlutina frekar,“ segir Auður.Raungreinakennarinn Per Lundholm segist spenntur fyrir og fagnar verkefninu sem jafnframt sé áskorun fyrir kennarana. „Ég er ekki vanur því að vinna með tónmenntakennaranum. Nú neyðumst við til þess í haust og í vor. Það er mjög spennandi og áskorun fyrir hugann,“ segir Lundholm í samtali við SVT.Viðamikið kennsluverkefniÞegar Biophilia var kynnt var því lýst í frétt mennta- og menningarmálaráðuneytsins sem viðamiklu kennsluverkefni sem byggi á víðtækri þátttöku fræðimanna, vísindamanna, listamanna, kennara og nemenda á öllum skólastigum. Verkefnið var þróað af Björk Guðmundsdóttur, Reykjavíkurborg og Háskóla Íslands í tengslum við útkomu plötu hennar Biophilia árið 2011. Þá voru haldnar tónvísindasmiðjur fyrir börn samhliða tónleikum Bjarkar í Hörpu, en þær hafa síðan verið reyndar víða um heim, svo sem í New York, Buenos Aires, Osló og Tokyo. Ísland fór með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni á síðasta ári og fólst formennskan meðal annars í því að leiða ýmis norræn samvinnuverkefni, þar á meðal Biophiliu.
Mest lesið Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Drangar kaupa Brauð & Co Viðskipti innlent Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Viðskipti innlent Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Bylgjan slær enn met í hlustun Samstarf Nýr 40/40 listi: Yngri stjórnendur hógværir og gamli leiðtogastíllinn að víkja Atvinnulíf Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Viðskipti innlent Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Viðskipti innlent Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Neytendur Fleiri fréttir Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu Sjá meira