Matur

Bakaður þorskur í brúnuðu smjöri með blómkáli og möndlum borin fram með sveppakartöflumús

Rikka skrifar
visir

Dásamlegur bakaður þorskur sem bráðnar í munni að hætti meistarakokksins Eyþórs Rúnarssonar

Bakaður þorskur í brúnuðu smjöri með blómkáli og möndlum borin fram með sveppakartöflumús 

Þ
orskur og blómkál

720 gr þorskhnakkar


1 stk blómkálshaus

200 gr smjör

½  stk sítróna safinn

1 stk skallotlaukur

½ stk rauður chili

2 msk sojasósa

1/3  búnt ítölsk steinselja

100 gr heilar möndlur

Skerið þorskinn í ca 180 gr steikur og kryddið með salti og pipar og setjið í álgrillbakka. Skerið blómkálið niður og bætið því út í bakkan. Bræðið smjörið í potti þar til það er farið að brúnast. Kælið smjörið í 5 min og bætið út í það skallotlauknum, chiliinu, sítrónusafanum og sojasósunni og möndlunum. Hellið smjörinu yfir fiskinn og setjið bakann á heitt grillið og eldið í ca 8 min. Gróf skerið steinseljuna og stráið yfir bakann þegar hann er búinn á grillinu.

Sveppakartöflumús

1 box sveppir smátt skornir

30 gr smjör

250 ml rjómi

2 msk sveppakraftur

½ stk fínt rifinn hvítlaukur

80 gr sveppasmurostur

3 stk stórar bökunarkartöflur (bakaðar eða grillaðar)

Olía til steikingar

Sjávarsalt

vatn

Steikið sveppina upp úr olíu og smjöri í potti. Hellið rjómanum í pottinn ásamt  smurostinum, sveppakraftinum og hvítlauknum. Sjóðið saman þar til að osturinn leysist upp. Takið skrælið utan af kartöflunum og setjið þær út í pottinn og látið þær sjóða með blöndunni í 2-3 min. Bætið í lokinn spínatinu út í og smakkið til með saltinu. Þynnið kartöflumúsina með vatni ef hún er of þykk.


Tengdar fréttir

Blómkálssushi með grillaðri risarækju að hætti Eyþórs

Eyþór Rúnarsson býr hér til frábært sushi. Eva Laufey kíkir í heimsókn til Eyþórs Rúnarssonar en hann sýndi henni snilldartakta í eldhúsinu. Eyþór er mættur aftur á skjáinn á Stöð 2 á fimmtudagskvöldum með gómsæta sumar og grillrétti við allra hæfi.

Grilluð risahörpuskel með misodressingu að hætti Eyþórs

Eyþór Rúnarsson hefur svo sannarlega slegið í gegn með þáttum sínum Sumar- og grillréttir Eyþórs á Stöð 2. Hann er með girnilegar hugmyndir sem henta fullkomlega á sumarhlaðborðið nú eða bara á sumarborðið inni ef það rignir úti.

Léttir sumarlegir réttir á grillið

Eyþór Rúnarsson matreiðslumeistari er með vikulegan matreiðsluþátt á Stöð 2 þar sem hann töfrar fram girnilega rétti sem allir henta á grillið. Hér grillar hann bleikju í salat, girnilega samloku og ananas í eftirrétt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×