Skoða rekstur flugrútu til Akureyrar Samúel Karl Ólason skrifar 3. júlí 2015 10:36 „Með þessu móti gætu farþegar verið komnir til Akureyrar fyrir miðnætti sama dag og þeir lenda.“ Vísir/Pjetur
Ferðaþjónustufyrirtækið Gray Line hefur skoðað möguleikann á því að bjóða beinar rútuferðir á milli Keflavíkurflugvallar og Akureyrar. Það hefur verið í skoðun undanfarna mánuði. Fyrirtækið telur að þannig mætti að hluta til mæta þörfum farþega í millilandaflugi sem eiga erindi norður eða að norðan. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Gray Line. „Hugmyndin er að ferðirnar verði í tengslum við komur og brottfarir á Keflavíkurflugvelli síðdegis. Við teljum að við þurfum að byrja með a.m.k tvær ferðir í viku, síðdegis til Akureyrar og að norðan að morgni dags,“ segir Þórir Garðarsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Gray Line. „Með þessu móti gætu farþegar verið komnir til Akureyrar fyrir miðnætti sama dag og þeir lenda. Á sama hátt gætu þeir náð síðdegisflugi frá Keflavíkurflugvelli sama dag og þeir leggja af stað frá Akureyri.“ Í tilkynningunni segir að Gray Line hafi kynnt þessi áform fyrir aðilum í ferðaþjónustu og fengið ágætar undirtektir. Slíkar ferðir gætu, að mati Gray Line, stuðlað að lengri dvöl ferðamanna fyrir noraðn og verið ákjósanlegur valkostur fyrir þá sem eiga aðeins erindi þangað og ætla ekki að stoppa á höfuðborgarsvæðinu. „Beint flug til Akureyrar hefur verið reynt og ekki gengið upp. Vafalítið mun koma að því að slíkar ferðir geti orðið sjálfbær kostur. En meðan verið er að skapa þann markað teljum við farsælast að byggja á þeirri staðreynd að mestallt millilandaflug fer um Keflavíkurflugvöll. Sá flugvöllur þjónar öllum áfangastöðum erlendis en viðbúið er að beint flug til Akureyrar tengist aðeins einum áfangastað erlendis. Við teljum því skynsamlegast í stöðunni að megináherslan í markaðssetningu Norðurlands beinist áfram að flugfarþegum sem fara um Keflavikurflugvöll, enda fara þar um 9 af hverjum 10 ferðamönnum sem hingað koma,“ segir Þórir.
Mest lesið Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira