Ingibjörg Ösp ráðin framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar Atli Ísleifsson skrifar 24. júní 2015 11:03 Ingibjörg Ösp hefur frá árinu 2008 stýrt Menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Vísir/Hjallastefnan
Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar sem rekur nítján leik- og grunnskóla í ellefu sveitarfélögum. Ingibjörg mun starfa við hlið Margrétar Pálu Ólafsdóttur sem verður hér eftir sem hingað til starfandi stjórnarformaður félagsins og hugmyndasmiður. Í tilkynningu frá Hjallastefnunni segir að Ingibjörg Ösp, sem leitt hefur Menningarhúsið Hof á Akureyri frá opnun, taki formlega við starfinu 1. ágúst. Tekur hún við af Áslaugu Huldu Jónsdóttur sem hefur verið framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar síðastliðin sjö ár.Stýrt Menningarhúsinu Hofi Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir er með meistarapróf í viðskiptafræði, stjórnun og stefnumótun frá Háskólanum á Akureyri. Hún var framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar á árunum 2003-2005 og markaðsstjóri KEA frá 2005-2008. Frá árinu 2008 hefur Ingibjörg stýrt Menningarhúsinu Hofi á Akureyri, fyrst við stefnumótun og undirbúning starfseminnar fyrir hönd Akureyrarbæjar en svo sem framkvæmdastjóri Menningarfélagsins Hofs sem rekið hefur húsið farsællega frá opnun. Ingibjörg er fimm barna móðir en maður hennar er Magnús Geir Þórðarson. Margrét Pála Ólafsdóttir, stjórnarformaður Hjallastefnunnar, segir Hjallastefnusamfélagið muni svo sannarlega njóta góðs af fjölbreyttri reynslu Ingibjargar. ,,Við höfum alltaf státað af einstaklega færu starfsfólki sem hefur verið okkar helsta stolt og er óhætt að segja að Ingibjörg smellpassi þar inn. Við öll fögnum henni innilega og bjóðum hana velkomna til starfa með öflugum leik- og grunnskólum Hjallastefnunnar.”Hlakkar til Ingibjörg Ösp segist hlakka mikið til að hefja störf hjá Hjallastefnunni og hafi lengi verið full aðdáunar á starfseminni og nálgun Margrétar Pálu á menntun barna. „Ég tel menntakerfið eina helstu grunnstoð samfélags okkar og því er það mér heiður að fá að taka þátt í því metnaðarfulla starfi sem Hjallastefnan stendur fyrir og að fá tækifæri til að starfa með öllu því góða fólki sem þar er.“ Hjallastefnan var stofnuð árið 2000 af Margréti Pálu Ólafsdóttur sem leitt hefur félagið frá upphafi og er hún aðaleigandi þess. „Félagið rekur 19 leik- og grunnskóla í ellefu sveitarfélögum, nemendur í skólum Hjallastefnunnar eru um 2000 talsins og starfsfólk er rúmlega 500. Drifkrafturinn í rekstri Hjallastefnunnar er sú skólahugsjón sem allt starf byggir á; jafnrétti, sköpun og lýðræði,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Steinkast og rispur? Ekki lengur vandamál með lakkvarnarfilmu frá Bónsvítunni Samstarf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira