Viðskipti innlent

Bein útsending: Seðlabankinn rökstyður vaxtahækkun

ingvar haraldsson skrifar
Már Guðmundsson seðlabankastjóri og Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri.
Már Guðmundsson seðlabankastjóri og Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri. vísir/anton brink
Seðlabanka Íslands hækkaði í morgun stýrivexti sína um 0,5 prósentustig auk þess að Seðlabankinn boðaði frekari vaxtahækkanir í ágúst sem og á komandi misserum til þess að tryggja stöðugt verðlag. Stýrivextir Seðlabankans eru nú 5 prósent.

Bein útsending af fundi Seðlabankans þar sem vaxtaákvörðun hans er útskýrð hófst klukkan 10 en fundinum er nú lokið.

„Þótt verðbólga sé enn lítil hafa verðbólguhorfur versnað verulega miðað við síðustu spá Seðlabankans og verðbólguvæntingar hafa áfram hækkað. Nú eru horfur á að verðbólga verði meiri en bankinn spáði í maí, sem rekja má til þess að þegar hefur verið samið um mun meiri launahækkanir en gert var ráð fyrir í spá bankans,“ segir í yfirlýsingu frá Peningastefnunefnd Seðlabankans.

Einnig segir að miklar launahækkanir og sterkur vöxtur eftirspurnar gætu grafið undan verðstöðugleika og valdið því að hækka þurfi vexti á ný.

„Horfur um þróun launakostnaðar, hækkun verðbólguvæntinga og vísbendingar um öflugan vöxt eftirspurnar valda því að óhjákvæmilegt er að bregðast nú þegar við versnandi verðbólguhorfum þrátt fyrir að verðbólga sé enn undir markmiði. Enn fremur virðist einsýnt að hækka þurfi vexti umtalsvert í ágúst og frekar á komandi misserum eigi að tryggja stöðugt verðlag til lengri tíma litið.“



Uppfært klukkan 10:26.


Fundinum er lokið.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×