Fjórir nýir til liðs við Logos Jón Hákon Halldórsson skrifar 10. júní 2015 11:22
LOGOS lögmannsþjónusta hefur bætt við sig fjórum nýjum löglærðum fulltrúum. Þau eru ráðin til að sinna lögfræðilegum verkefnum hjá fyrirtækinu og hófu störf í maí síðastliðnum og í byrjun júní. Berta Gunnarsdóttir hefur verið ráðin sem fulltrúi hjá LOGOS. Berta útskrifaðist með ML gráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík í janúar 2015. Berta hefur starfað á sviði lögfræði hjá Tryggingamiðstöðinni og Expo auglýsingastofu samhliða námi. Hún hefur einnig starfað sem aðstoðarkennari og var formaður Lögréttu, félags laganema við Háskólann í Reykjavík, árið 2012-2013. Auk þess sat hún í stjórn Stúdentafélags Háskólans í Reykjavík. Unnusti Bertu er Guðmundur Bergþórsson viðskiptafræðingur og eiga þau eina dóttur. Halldór H. Gröndal hefur verið ráðinn sem fulltrúi hjá LOGOS. Halldór útskrifast með ML gráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík 20. júní nk. Hann starfaði áður sem laganemi hjá LOGOS lögmannsþjónustu samhliða námi frá árinu 2013 og hjá Sjúkratryggingum Íslands 2011-2012. Halldór situr í stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna. Hann hefur starfað sem aðstoðarkennari við Háskólann í Reykjavík og sat í stjórn Stúdentafélags Háskólans í Reykjavík. Unnusta Halldórs er Hrefna Daðadóttir. Magnús Már Leifsson hefur verið ráðinn sem fulltrúi hjá LOGOS. Magnús útskrifast með ML gráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík 20. júní nk. Hann starfaði áður sem laganemi hjá LOGOS lögmannsþjónustu samhliða námi frá árinu 2013. Magnús hefur einnig starfað hjá Sparisjóði Ólafsvíkur og sinnt hinum ýmsu störfum í sjávarútvegi víða um land ásamt því að vera aðstoðarkennari við Háskólann í Reykjavík. Unnusta Magnúsar er Erla Guðmundsdóttir. Oddur Ástráðsson hefur verið ráðinn sem fulltrúi til að sinna lögfræðilegum verkefnum hjá LOGOS. Oddur útskrifast með MA gráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands 20. júní nk. Hann starfaði áður sem laganemi hjá LOGOS lögmannsþjónustu samhliða námi, fyrst á árunum 2012-2013 og svo aftur frá vori 2014. Oddur starfaði hjá umboðsmanni Alþingis, samhliða námi á árunum 2013-2014. Oddur hefur sinnt aðstoðarkennslu í bæði einkamálaréttarfari og sakamálaréttarfari við lagadeild HÍ á árunum 2013-2015. Áður en Oddur hóf laganám starfaði hann um skeið á fréttastofu Stöðvar 2 við framleiðslu frétta og sem fréttamaður. Unnusta Odds er Sigurlaug Elín Þórhallsdóttir, kvikmyndafræðingur og eiga þau tvö börn.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Steinkast og rispur? Ekki lengur vandamál með lakkvarnarfilmu frá Bónsvítunni Samstarf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira