Lítill hluti tekna Color Run rennur til góðgerðamála ingvar haraldsson skrifar 10. júní 2015 14:52 Davíð Lúther Sigurðsson, framkvæmdastjóri Color Run, segir engan verða ríkan af skipulagningu hlaupsins. vísir/andri marínó
Lítill hluti tugmilljóna tekna The Color Run sem fór fram um helgina rennur til góðgerðamála eða fimm milljónir króna. Stundin greindi fyrst frá málinu. Um 8500 manns voru skráðir til leiks í hlaupinu fyrir utan börn yngri en níu ára sem ekki greiddu skráningargjald. Fjórtán ára og eldri greiddu 6499 krónur fyrir þátttöku í hlaupinu en þeir sem eru á aldrinum níu til þrettán ára greiddu 3499 krónur fyrir þátttökuna. Gróflega má áætla að tekjur af skráningargjaldi hafi verið á bilinu 30 til 55 milljónir. Þar að auki var Alvogen aðal bakhjarl keppninnar auk þess að Nýherji, Brooks, Bai og Saffran styrktu keppnina. Davíð Lúther Sigurðsson, framkvæmdastjóri hlaupsins, segir það hafa legið fyrir frá því í haust að fimm milljónum yrði varið til góðgerðamála óháð því hve miklar tekjur af hlaupinu yrðu. Milljónirnar fimm runnu til Unicef, Rauða krossins og Íþróttasambands fatlaðra sem Davíð segir að séu mjög ánægð með framtakið. Þá hafi keppendur þar að auki verið hvattir til að senda SMS skilaboð til að styrkja góð málefni.Segist ekki verða ríkur af hlaupinu Davíð segir því að honum sárni umræða um hvernig tekjur af hlaupinu skiptist. „Það var gríðarlegur kostnaður við hlaupið og þess vegna verður maður svolítið pirraður þegar fólk heldur að maður sé orðinn ríkur,“ segir Davíð. „Það verður enginn ríkur af þessu. Það er gífurlegur kostnaður sem við þurfum að greiða í starfsmannakostnað, hlið, listamenn, litapúðri, leyfi til fyrirtækisins úti, flutninga á alls konar tækjum og tólum að utan í gámum,“ segir hann. Þess utan hafi orkudrykkur, þvottaefni rásnúmer keppnisbolur litapoki verið innifalið í skráningargjaldinu. Davíð segist ekki vita hvenær uppgjöri á hlaupinu ljúki, þó hann segist vongóður um að það hafi staðið undir sér. „Við ætlum að vona það og það var allavega stefnan og það sagði skjalið okkar í framkvæmdunum.“Uppfært kl. 17.20. Í fréttinni stóð að áður hefði komið fram að ágóði hlaupsins ætti að mestu leyti að renna til góðgerðarmála. Það var ekki rétt.
Tengdar fréttir Styðja við réttindi barna Rauði krossinn, UNICEF og Íþróttasamband fatlaðra hafa hlotið styrk úr nýjum samfélagssjóði The Color Run og lyfjafyrirtækisins Alvogen sem nýverið var stofnaður til stuðnings réttindum og velferð barna. 8. maí 2015 17:00 Hlaupa fyrir UNICEF Atli Fannar, Berglind Festival, Sunna Ben, Magga Maack, Gunni Hans og Lóa í FM Belfast taka þátt í litagleði með UNICEF á Íslandi í tengslum við The Color Run. 4. júní 2015 16:30 Mest lesið Sýndareftirlit ef fylgjast eigi með skemmtistöðum á skrifstofutíma Viðskipti innlent Olíuverð lækkar eftir fregnir af samkomulagi Viðskipti erlent Ógnarlöng stefna Samkeppniseftirlitsins kemst að eftir allt saman Viðskipti innlent Sigurjón nýr framkvæmdastjóri Mediacom Viðskipti innlent Ekki sést til lands í deilunni sem hefur haft áhrif á yfir sjö þúsund farþega Viðskipti innlent Hakkarar geti lesið gögn af læstri tölvu á tíu mínútum án lykilorðs Viðskipti innlent Tillögur ráðherra sagðar rýra virði bankanna um tugi milljarða Viðskipti innlent Fjármálaráðherra veldur fyrrverandi varaformanni Viðreisnar vonbrigðum Viðskipti innlent Tilboð Reita í uppbyggingu hjúkrunarheimilis valið Viðskipti innlent Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tilboð Reita í uppbyggingu hjúkrunarheimilis valið Ekki sést til lands í deilunni sem hefur haft áhrif á yfir sjö þúsund farþega Sigurjón nýr framkvæmdastjóri Mediacom Ógnarlöng stefna Samkeppniseftirlitsins kemst að eftir allt saman Hakkarar geti lesið gögn af læstri tölvu á tíu mínútum án lykilorðs Sýndareftirlit ef fylgjast eigi með skemmtistöðum á skrifstofutíma Tillögur ráðherra sagðar rýra virði bankanna um tugi milljarða Fjármálaráðherra veldur fyrrverandi varaformanni Viðreisnar vonbrigðum Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Enn fjölgar aflýsingum Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Sjá meira
Styðja við réttindi barna Rauði krossinn, UNICEF og Íþróttasamband fatlaðra hafa hlotið styrk úr nýjum samfélagssjóði The Color Run og lyfjafyrirtækisins Alvogen sem nýverið var stofnaður til stuðnings réttindum og velferð barna. 8. maí 2015 17:00
Hlaupa fyrir UNICEF Atli Fannar, Berglind Festival, Sunna Ben, Magga Maack, Gunni Hans og Lóa í FM Belfast taka þátt í litagleði með UNICEF á Íslandi í tengslum við The Color Run. 4. júní 2015 16:30