Glamour

Glamour skálar fyrir sólinni

Oddný Magnadóttir skrifar
Já, hún hefur loksins látið sjá sig blessuð sólin. Þá er fátt annað í stöðunni en að skála fyrir henni. 

Glamour deilir uppskrift af ómótstæðilegum Aperol sumarkokteil. 



 

Það eru ekki mörg ár síðan Aperol fór að sjást á veitingastöðum hér á landi.

Aperol er samt ekki nýr drykkur, saga Aperol nær alveg aftur til ársins 1919 þegar Aperol varð fyrst vinsælt meðal skemmtanaglaðra ítala. Þekktastur er sennilega Aperol Spritz drykkurinn. En lágt alkóhólmagn drykkjarins  (8%) gerir hann eftirsóttan. Aperol er svokallaður bitter drykkur og  innheldur hvað lægst alkohólmagn en Aperol er aðeins 11% í styrkleika.

Aperol er gert úr blöndu af sætum og beiskum appelsínum, rabbarbara og hinum ýmsu kryddjurtum. Uppskriftin hefur verið eins frá upphafi og hefur aldrei fengist uppgefin . Og til markst um vinsældir Aperol Spritz þá eru drukkin 300.000 glös á dag í Veneto á ítalíu. Hægt er að nota hann í allskonar kokteila og frísklegur liturinn og  afgerandi bragðið skemmir ekki fyrir.


 

Aperol Spritz

3 hlutar prosecco eða hvítvín

2 hlutar Aperol

sneið af appelsínu

sódavatn

Fyllið glas af ísmolum, hátt hvítvínsglas hentar mjög vel.

Byrjið á að hella víninu, þar næst Aperol og fyllið upp með sódavatni. Stingið hálfri appelsínusneið í glasið.

 

Blóðrautt sólarlag

2 hlutar Aperol

safi úr 5 litlum blóðappelsínum

Fyllið glasið með ísmolum

Kreistið safann út appelsínunum og sigtið

Setjið 2 hluta af Aperol í glas og fyllið upp með appelsínusafanum.

Ef blóðappelsínur eru ekki fáanlegar má alveg nota venjulegar sætar appelsínur í staðinn.

 

Inngangur að Aperol

2 hlutar Aperol

1 hluti gin

¾ hlutar sítrónusafi

¼ hluti einfalt sýróp*

Setjið allt í hristara með ísmolum og hristið saman, hellið í fallegt kokteilglas. Skreytið glasið með þunnri ræmu af sítrónuberki

*einfalt sýróp er gert með því að sjóða saman 1 bolla af sykri og 1 bolla af vatni þangað til sykurinn er uppleystur, umþb. 3 mínútur. Látið sýrópið kólna alveg áður en það er notað

 






×