Actavis plc verður Allergan plc 15. júní 2015 14:00 Sameinað fyrirtæki er nú orðið eitt af 10 stærstu lyfjafyrirtækjum í heimi með um 30.000 starfsmenn í 100 löndum. vísir
Actavis plc, móðurfélag Actavis á Íslandi, tilkynnti í dag að fyrirtækið hefur nú formlega tekið upp nafnið Allergan plc og hefjast viðskipti undir nýju auðkenni, AGN, í kauphöllinni í New York í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Nafnabreytingin var samþykkt á hluthafafundi félagsins þann 5. júní sl. í kjölfar kaupa Actavis á Allergan í mars sl. Sameinað fyrirtæki er nú orðið eitt af 10 stærstu lyfjafyrirtækjum í heimi með um 30.000 starfsmenn í 100 löndum, með áherslu á frumlyf, samheitalyf og líftæknilyf. Einungis er um að ræða breytingu á nafni móðurfélagsins en starfsemin á Íslandi verður óbreytt undir nafni og merki Actavis enn um sinn. Hins vegar er nú þegar hafin vinna við að sameina alla starfsemi fyrirtækisins alþjóðlega undir Allergan nafninu að undanskyldu samheitalyfjasviði fyrirtækisins í Bandaríkjunum og Kanada sem mun starfa óbreytt undir nafni Actavis. Nafnabreytingin og nýtt merki, sem móðurfélagið hefur tekið upp frá og með deginum í dag, marka nýtt upphaf fyrir sameinað fyrirtæki og endurspegla þá miklu breytingu sem hefur orðið á fyrirtækinu undanfarin misseri. Merkið táknar orku, hreyfingu, vöxt, hugmyndir, fjölbreytileika og þróun. Þetta undirstrikar sérstöðu fyrirtækisins sem ný tegund alþjóðlegs lyfjafyrirtækis sem hefur það að markmiði að fara nýjar leiðir og hrinda í framkvæmd nýjum hugmyndum innan heilbrigðisgeirans til að mæta þörfum viðskiptavina, lækna, sjúklinga og neytenda út um allan heim. Allergan – ný tegund fyrirtækis innan lyfjageiransAllergan plc (NYSE: AGN) er alþjóðlegt lyfjafyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og sölu frumlyfja, samheitalyfja, lausasölulyfja og líftæknilyfja. Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í Dublin á Írlandi. Á sviði frumlyfja er Allergan með breitt vöruúrval og sérhæfir sig m.a. í meðferðum við tauga-, augn-, meltingar-, þvagfæra-, hjarta- og smitsjúkdómum, ásamt því að vera leiðandi í húð- og lýtalækningum sem og heilsu kvenna. Þá er samheitalyfjasvið Allergan það þriðja stærsta í heimi og er fyrirtækið stöðugt að auka aðgengi að hágæða samheitalyfjum á hagkvæmu verði út um allan heim. Allergan er leiðandi í lyfjaiðnaðinum þegar kemur að rannsóknum og þróun og er með eitt breiðasta úrval lyfja í þróun innan lyfjageirans og leiðandi í skráningum samheitalyfja á alþjóðavísu. Fyrirtækið er með sölustarfsemi í 100 löndum og leggur áherslu á að vinna með heilbrigðisstarfsfólki sem og sjúklingum að því markmiði að efla heilsu og lífsgæði fólks út um allan heim.Fjölbreytt alþjóðleg starfsemi á mörgum sviðum á ÍslandiHjá starfsstöð Actavis á Íslandi starfa um 700 manns hjá öflugum alþjóðlegum einingum, m.a. á sviði lyfjaþróunar, alþjóðlegra lyfjaskráninga, framleiðslu, gæðamála og fjármála. Einnig starfar á Íslandi hópur sérfræðinga á sviði einkaleyfa, öflug sölu- og markaðsdeild sem sinnir Íslandsmarkaði og ýmis stoðsvið. Í Hafnarfirði eru einnig höfuðstöðvar Medis, dótturfélags Actavis, sem selur lyf og lyfjahugvit til annarra lyfjafyrirtækja.
Mest lesið Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Viðskipti innlent Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Viðskipti innlent Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Viðskipti innlent Drangar kaupa Brauð & Co Viðskipti innlent Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu Sjá meira