Græddi tugi milljóna í afleiðuviðskiptum en borgaði ekki skatt af hagnaðinum Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 16. júní 2015 10:27 Sérstakur saksóknari hefur ákært sjötugan karlmann fyrir meiriháttar brot á skattalögum. vísir/stefán
Sérstakur saksóknari hefur ákært sjötugan karlmann fyrir skattsvik. Samkvæmt ákæru taldi maðurinn ekki fram 87 milljóna króna hagnað vegna sölu hlutabréfa og afleiðuviðskipta fyrir tekjuárin 2007 og 2008. Hann kom sér því undan því að greiða 10% fjármagnstekjuskatt sem nam 8,7 milljónum. Í ákæru kemur fram að á árinu 2007 hafi maðurinn annars vegar hagnast um 4,8 milljónir á sölu hlutabréfa og um 47 milljónir á skiptasamningum vegna afleiðuviðskipta. Í skattframtali sínu fyrir árið 2007 taldi maðurinn fram um 14 milljónir í tekjur vegna skiptasamninganna. Þá stóð eftir rúmlega 37 milljóna hagnaður sem ákærði taldi ekki fram. Á árinu 2008 hagnaðist maðurinn svo um 49 milljónir í afleiðuviðskiptum sem hann taldi ekki fram. Brot mannsins, sem í ákæru eru sögð meiriháttar, varða við fyrstu málsgrein 262. greinar almennra hegningarlaga. Saksóknari krefst þess að maðurinn verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Mest lesið Lagning gjaldþrota Viðskipti innlent Fyrrverandi bankastjóri nýr forstjóri Thor landeldis Viðskipti innlent Trump setur tolla á lyf, vörubíla og húsgögn Viðskipti erlent Ekki of seint að breyta starfsframa eða vinnu eftir fimmtugt Atvinnulíf Lífsverk og Almenni lífeyrissjóðurinn í eina sæng Viðskipti innlent Að líða eins og svikara í vinnunni Atvinnulíf Uppsagnir hjá Fjársýslunni Viðskipti innlent Opnar stað í anda Kaffi Vest í Fossvoginum Viðskipti innlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Guðný ráðin fræðslustjóri og Kristófer Orri í gjaldeyrismiðlun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lífsverk og Almenni lífeyrissjóðurinn í eina sæng Lagning gjaldþrota Fyrrverandi bankastjóri nýr forstjóri Thor landeldis Edda María leiðir stafræna markaðsþjónustu Vettvangs Uppsagnir hjá Fjársýslunni Guðný ráðin fræðslustjóri og Kristófer Orri í gjaldeyrismiðlun Kostaði tvo milljarða að selja Íslandsbanka Verðbólgan 4,1% og fer upp á milli mánaða Bein útsending: Framsýn forysta Opnar stað í anda Kaffi Vest í Fossvoginum Neyslan mikil og sjá ekki að stýrivextir fari hratt lækkandi Sexfölduðu veltuna á einu ári Gjaldeyrisforðinn nálægt billjón króna Rúna nýr innkaupastjóri Banana Úr geimskipaútgerð til Faxaflóahafna Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Selur Alvogen í Bandaríkjunum með samruna sem skapar risa á lyfjamarkaði Óvissa á alþjóðavettvangi undirstrikar mikilvægi ríflegs gjaldeyrisforða SVEIT muni afhenda öll gögn og ekki greiða dagsektir SVEIT sleppi ekki við milljónasektir Bætist í eigendahóp Strategíu Guðrún til Landsbankans Hvernig fæ ég unglingana mína til að fara betur með peninga? „Það er betlmenning og allir eiga að fá allt frítt“ Vélfag stefnir ríkinu Meirihluti í SA andvígur ESB aðild Ráðinn nýr tækni- og þjónustustjóri Advania á Akureyri Syndis kaupir sænskt fyrirtæki Tveir nýir stjórnendur hjá Símanum Jóhann Páll hættir við þátttöku á haustfundi SVEIT Sjá meira