Rannveig og félagar tekin fyrir í dómssal Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 1. júní 2015 10:27 Sakborningar í dómssal í morgun. Vísir/GVA
Aðalmeðferð í máli sérstaks saksóknara gegn fyrrverandi forstjóra og stjórnarmönnum SPRON hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Guðmundur Hauksson, fyrrverandi forstjóri sparisjóðsins, er ákærður ásamt fyrrum stjórnarmönnunum Rannveigu Rist, Jóhanni Ásgeir Baldurs, Margréti Guðmundsdóttur og Ara Bergmann Einarssyni. Þau hafa öll neitað sök. Fimmmenningunum er gefið að sök að hafa misnotað aðstöðu sína hjá sparisjóðnum og stefnt fé hans í verulega hættu þegar SPRON lánaði Existu tvo milljarða króna rétt fyrir hrun, eða þann 30. september 2008. Saksóknari telur að ákærðu hafi farið út fyrir heimildir sínar til lánveitinga auk þess sem lánið sé óvenjulegt, eins og segir í ákæru, þar sem um er að ræða eina lánið sem stjórn sparisjóðsins samþykkti á árunum 2007-2008. Í ákæru segir að lán SPRON til Exista hafi verið án allra trygginga. Þá hafi ekki farið fram mat á stöðu Existu og greiðslugetu, þrátt fyrir að ákærðu hafi hlotið að vera ljóst að eignir þess hefðu fallið mikið í verði á mörkuðum auk þess sem gengi hlutabréfa í Exista hafi fallið mjög á mörkuðum. Áætlað er að aðalmeðferð í málinu taki þrjá daga.
Mest lesið Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Viðskipti innlent Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Viðskipti innlent Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Viðskipti innlent Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Neytendur Andrew Thomas, stofnandi BetterYou talar á Læknadögum Samstarf Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Viðskipti innlent Þarf stundum að kalla á eiginkonuna „komdu að sofa ástin“ Atvinnulíf Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Viðskipti innlent Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Sjá meira