Stýrivextir Seðlabankans óbreyttir ingvar haraldsson skrifar 13. maí 2015 09:03 Már Guðmundsson seðlabankastjóri. vísir/daníel
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Stýrivextir, sem eru vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 4,5%.Í yfirlýsingu Peningastefnunefndar kemur fram þróun kjaraviðræðna að undanförnu ásamt hækkun verðbólguvæntinga og vísbendingum um öflugan vöxt eftirspurnar bendi til þess að hækka gæti þurfi vexti á næsta fundi nefndarinnar í júní. Einnig er bent á að samkvæmt spá Seðlabankans verði hagvöxtur um 4½% í ár og að meðaltali tæplega 4% á ári á spátímanum, sem sé meiri vöxtur en bankinn spáði í febrúar. „Framleiðsluspenna myndast á þessu ári og nær hámarki á því næsta. Batinn á vinnumarkaði hefur færst í aukana að undanförnu. Sé tekið mið af hinum miklu launakröfum sem nú eru uppi mætti ætla að spenna á vinnumarkaði sé nú þegar til staðar eða að slaki hafi a.m.k. minnkað hraðar en samrýmist verðstöðugleika,“ segir í tilkynningu. Þá er bent á að verðbólga sé enn lítil og lítils háttar lækkun verðlags mælist sé horft fram hjá áhrifum húsnæðiskostnaðar. „Lítil alþjóðleg verðbólga og stöðugt gengi krónu hafa haldið aftur af verðbólgu og vegið á móti áhrifum töluverðra launahækkana innanlands. Verðbólguhorfur hafa hins vegar versnað frá síðustu spá Seðlabankans. Líkur á hagstæðu samspili lítillar innfluttrar verðbólgu og hóflegra kjarasamninga virðast nú hverfandi, enda hafa verðbólguvæntingar hækkað frá síðustu spá eftir að hafa lækkað í markmið í upphafi árs.“ Því gerir grunnspá bankans ráð fyrir að verðbólga fari yfir markmið strax í upphafi næsta árs og meiri líkur sé á að verðbólga verði meiri en spáð en að hún verði minni. Framvinda kjaraviðræðna eftir að spáin var gerð hefur aukið þessa hættu enn frekar.
Mest lesið Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Viðskipti innlent Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Viðskipti innlent Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Viðskipti innlent Tekur við sem forstjóri S4S Viðskipti innlent Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur „Alltaf að líða þannig í vinnunni þinni að þú skiptir máli“ Atvinnulíf Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Sjá meira