Viðskipti innlent

Þrotabú bankanna gætu þurft að greiða yfir 1.800 milljarða í skatt

ingvar haraldsson skrifar
Þrotabú föllnu bankanna gætu þurft að greiða stærstan hluta af eignum sínum í skatt.
Þrotabú föllnu bankanna gætu þurft að greiða stærstan hluta af eignum sínum í skatt.
Þrotabú föllnu bankanna gætu þurft að greiða yfir 1800 milljarða íslenskra króna í skatt verði slitum á búunum ekki lokið fyrir árslok 2018. Þetta kemur fram í Viðskiptablaðinu í dag.

Útreikningurinn byggir á bindandi áliti ríkisskattstjóra frá því fyrr á þessu ári. Þar kemur fram að mismunur milli samþykktra krafna og eigna þrotabúa skuli flokkast sem eftirgjöf skuldar og því vera skattlögð sem tekjur. Slíkur skattur myndi teljast sem búskrafa og ganga fram fyrir forgangskröfur. Tekjuskattur við gjaldþrotaskipti er 36% en 20% þegar skiptum lýkur með nauðasamningi.



Þyrftu að ljúka slitum fyrir árslok 2018


Þrotabúin geta á móti þessum kröfum nýtt yfirfæranlegt skattalegt tap sitt en þar eru þau að renna út á tíma. Yfirfæranlegt skattalegt tap má aðeins nýta í áratug. Kaupþing hefur eitt þrotabúa gefið út yfirfæranlegt tap sitt sem þeir meta 2.412 milljarða króna. Það er hins vegar að langstærstum hluta tilkomið vegna ársins 2008 eða 2.286 milljarðar samkvæmt því sem fram kemur í Viðskiptablaðinu. Miðað við þetta munu þrotabúin því þurfa að greiða stóran hluta af eignum sínum í skatt eftir árið 2018.   

Að óbreyttu þurfa þrotabúin því að ljúka gjaldþrotaskiptum fyrir árslok 2018 til að komast hjá því skattgreiðslunum. SPB ehf., sem áður hét Icebank, óskaði eftir álitinu en Viðskiptablaðið segist hafa heimildir fyrir því að málinu verði áfrýjað til yfirskattanefndar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×