Ríkisskattstjóri viðurkennir mistök: Afturkallar álit vegna skatta á þrotabú ingvar haraldsson skrifar 13. maí 2015 15:34 Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri. mynd/sigurður jökull „
Ég verð bara að játa það að þau mistök voru gerð að það var ekki gerður nægjanlega glöggur munur á eftirgefnum skuldum rekstraraðila og ógreiddum kröfum við lok gjaldþrotaskipta,“ segir Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri um bindandi álit nr. 2/2015 sem embættið ákvað í dag að afturkalla. Sjá einnig: Þrotabú bankanna gætu þurft að greiða yfir 1.800 milljarða í skatt Hefði álitið staðið hefði það haft í för með sér að þrotabú föllnu bankanna ættu von á að þurfa að greiða yfir 1.800 milljarða í skatt yrði slitum á þrotabúunum ekki lokið fyrir árslok 2018. Viðskiptablaðið greindi frá málinu í dag. Ástæða þess var að miðað við álit ríkisskattstjóra taldist mismunurinn milli krafna og eigna þrotabúa sem eftirgjöf skuldar í skattalegu tilliti og því ætti að flokka það sem tekjur. Af þessum tekjum hefðu þrotabúin þurft að greiða tekjuskatt. Skúli Eggert segir að í álitinu hafi ekki nægjanlega glöggur munur gerður á eftirgefnum skuldum rekstraraðila og ógreiddum kröfum við lok gjaldþrotaskipta. Hann bætir við að embættið geti ekki gert annað en að biðjast velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta hafi valdið. „Allavega metum við það þannig að það þurfi að afturkalla þessa ákvörðun. Mér heyrist á þeirri umræðu sem hafi nú verið að það sé einnig skoðun álitsbeiðandi eða a.m.k. þeirra sem tjáð sig hafa um málið,“ segir Skúli Eggert.
Mest lesið Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Viðskipti innlent Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Viðskipti innlent Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Viðskipti innlent Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Viðskipti innlent Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Viðskipti innlent Túnfisksævintýri Íslendinga endar með ósköpum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Sjá meira