Vaxtakostnaðurinn vegna Icesave-krafnanna hefur ekki verið reiknaður Aðalsteinn Kjartansson skrifar 19. maí 2015 12:00 "Í íslensku samhengi eru þessar fjárhæðir mjög háar,“ segir formaður stjórnar Tryggingasjóðs innistæðueigenda. Vísir/Getty
Ekki er ljóst hversu miklum vöxtum kröfur Breta og Hollendingar hafa safnað eftir að mál þeirra gegn Tryggingasjóði innistæðueigenda á Íslandi var höfðað fyrir íslenskum dómstólum. EFTA-dómstólinn hefur fengið þrjár spurningar er varða hvort tilhögun sjóðsins á Icesave-kröfunum stenst EES-samninginn. Guðrún Þorleifsdóttir, formaður stjórnar tryggingasjóðsins, segir að lítið sé að gerast í málinu. Beðið sé eftir að svör berist frá EFTA-dómstólnum vegna spurninga Breta og Hollendinga. „Já, það er rétt að í íslensku samhengi eru þessar fjárhæðir mjög háar. Það liggur fyrir í fréttatilkynningunni frá sjóðnum frá því í fyrra hverjar stefnufjárhæðir eru en vaxtaútreikningur og slíkt hefur ekki farið fram alveg nýlega hjá okkur en á sínum tíma voru þetta á annað þúsund milljarðar samanlagt,” segir hún. Gunnar Viðar, lögmaður TIF, segir alltaf óvissu þegar mál fara fyrir dómstóla. Þetta mál sé einnig annarskonar en þegar ríkið vann Icesave-málið fyrir EFTA-dómstólnum. „Fyrsta spurningin sem liggur fyrir er kannski lykilspurning í málinu. Það er spurningum um hvort að greiðsluskylda TIF geti takmarkast við lægri fjárhæð heldur en þessar 20 þúsund evrur eða svo sem tilskipunin kveður á um í þessu tilviki þegar um allsherjar hrun á fjármálamarkaið er að ræða og það liggur fyrir að ekki eru til nægilegir fjármunir hjá sjóðnum til að mæta þessum kröfum og ekki möguleiki heldur að leggja þær álögur á bankakerfið sem þyrfti til að standa undir greiðslum á slíkum kröfum,“ segir hann. Ekki liggur fyrir hvenær svör munu berast frá EFTA-dómstólnum en málsaðilar vinna nú að greinargerðum með sjónarmiðum sínum sem lagðar verða fyrir dóminn áður en hann svarar með áliti sínu. Guðrún segist ekki eiga von á að málflutningur í málinu fyrir héraðsdómi. verði fyrr en eftir sumarleyfi.
Mest lesið Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Viðskipti innlent Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Viðskipti innlent Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Viðskipti innlent Tekur við sem forstjóri S4S Viðskipti innlent Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur „Alltaf að líða þannig í vinnunni þinni að þú skiptir máli“ Atvinnulíf Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Sjá meira