Viðskipti innlent

„Fjárskortur er ekki gild afsökun stjórnvalds fyrir því að virða ekki mannréttindi”

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Sigurður Einarsson og Páll Winkel.
Sigurður Einarsson og Páll Winkel. vísir/daníel/anton brink
Gestur Jónsson, verjandi Sigurðar Einarssonar, fyrrverandi stjórnarformanns Kaupþings, fór í dag fram á að ákærunni á hendur honum í markaðsmisnotkunarmáli bankans verði vísað frá dómi. Gerir verjandinn það á grundvelli þess að hann telur skjólstæðing sinn ekki hafa notið réttlátrar málsmeðferðar.

Byrjaði Gestur ræðu sína á því að fara yfir samskipti sín við fangelsismálastjóra, Pál Winkel, sem sneru að því hvernig hægt væri að tryggja að Sigurður gæti verið viðstaddur aðalmeðferð málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur.

Ekki hægt að flytja Sigurð daglega milli Kvíabryggju og Reykjavíkur

Eins og kunnugt er situr Sigurður nú í fangelsi á Kvíabryggju vegna dóms sem hann hlaut í Al Thani-málinu. Fór hann fram á það við fangelsismálayfirvöld áður en aðalmeðferð hófst að hann yrði fluttur daglega úr fangelsinu til Reykjavíkur svo hann gæti setið réttarhöldin.

Þeirri beiðni hafnaði fangelsismálastjóri og bar fyrir sig skorti á fjármunum en bauð honum þess í stað að dvelja í fangaklefa á gæsluvarðhaldsganginum í Hegningarhúsinu á Skólavörðustíg.

Með þessu telur Gestur að réttindi skjólstæðings síns til að verjast hafi verið brotin en þau eru tryggð í 6. grein Mannréttindasáttmála Evrópu sem kveður á um að allir eigi að njóta réttlátrar málsmeðferðar.

Sjá einnig: Hreiðar bauðst til að borga fyrir bíl og bílstjóra

Aðstaða á gæsluvarðhaldsgangi ekki fullnægjandi

Hver sá sem sakaður er um refsiverða háttsemi á meðal annars rétt á því að fá nægan tíma og aðstöðu til að undirbúa vörn sína, hann á að eiga möguleika á því að halda uppi vörnum sjálfur og á að fá að spyrja sjálfur eða láta spyrja vitni sem leidd eru gegn honum.

Með ákvörðun sinni hafi fangelsismálayfirvöld komið í veg fyrir að Sigurður gæti notið þessara réttinda sinna. Sagði Gestur að sú aðstaða sem honum hafi verið boðin væri ekki fullnægjandi og Sigurður hafi meðal annars talið útilokað að hann næði að hvílast við þær aðstæður sem eru á gæsluvarðhaldsgangi Hegningarhússins.

„Þetta er ekki í samræmi við skyldur stjórnvalda um að virða réttindi um réttláta málsmeðferð,” sagði Gestur og bætti við:

„Fjárskortur er ekki gild afsökun stjórnvalds fyrir því að virða ekki mannréttindi.”

Átti sjálfur að útvega búnað til að vera í netsambandi

Í þessu samhengi gerði Gestur að umtalsefni frétt í Morgunblaðinu sem birtist á svipuðum tíma og hann var í samskiptum við Pál Winkel vegna beiðni Sigurðar um að vera við aðalmeðferðina. Í fréttinni var eftirfarandi haft eftir forstöðumanni Hegningarhússins:

„Hér er t.d. engin aðstaða til vinnu eða náms og þetta er eina tölvulausa fangelsið á landinu.”

Fram hafði komið hjá Gesti að fangelsismálayfirvöld hefðu boðið Sigurði afnot af tölvu í Hegningarhúsinu. Hins vegar væri ekkert netsamband á gæsluvarðhaldsganginum og hefði Sigurður þurft að útvega sér sjálfur búnað til að geta verið í netsambandi.

„Eins og fangelsimálayfirvöld séu að gera grín að manni”

Í framhaldi af þessu óskaði Gestur eftir því að Sigurður fengi að koma á skrifstofu verjandans, helgina áður en hann átti að gefa skýrslu fyrir dómi, en því var hafnað.

Fangelsismálayfirvöld buðu Gesti hins vegar að hitta Sigurð á virkum degi í Hegningarhúsinu eða koma á Kvíabryggju.

„Það er eins og fangelsismálayfirvöld séu að gera grín að manni. Þau vita vel að maður er fastur í þessum sal á þessum tíma [á virkum degi].”


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×