Viðskipti innlent

Segir Hreiðar, Sigurð og Ingólf hafa tekið ákvarðanir um viðskipti með hlutabréf í Kaupþingi

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Hreiðar Már Sigurðsson, Sigurður Einarsson og Ingólfur Helgason.
Hreiðar Már Sigurðsson, Sigurður Einarsson og Ingólfur Helgason. Vísir
Davíð Gunnarsson, fyrrverandi starfsmaður eigin viðskipta Kaupþings, sagði fyrir dómi í dag að sjálfstæði deildarinnar hefði farið minnkandi eftir því sem leið á ákærutímabilið í markaðsmisnotkunarmáli sem sérstakur saksóknari hefur höfðað á hendur níu fyrrverandi stjórnendum og starfsmönnum bankans.

Níu manns áttu að koma og bera vitni í málinu í dag en aðeins náðist að taka skýrslu af fimm þeirra. Davíð var einn af þeim en hann stundaði hlutabréfaviðskipti á mörkuðum í Svíþjóð og Danmörku fyrir eigin viðskipti Kaupþings.

Breyttist um mitt ár 2007

Björn Þorvaldsson, saksóknari, spurði hann hvort honum hafi verið kunnugt um stefnu deildar eigin viðskipta með bréf í Kaupþingi og hver hafi ákveðið hana.

„Það má eiginlega segja að fram á mitt ár 2007 hafi hún verið ákveðin eingöngu af eigin viðskiptum, enda má skoða þróun bókarinnar og staðan er létt um mitt ár 207. Þá fer að halla undan fæti á markaði og það breytist aðeins hvar ákvarðanir eru teknar varðandi eigin bréf.”

Davíð sagði ákvarðanatökuna hafa færst ofar í röðina innan fyrirtækisins. Spurður nánar út í hverjir hafa tekið ákvarðanirnar varðandi eigin bréf sagði Davíð það hafa verið yfirstjórn bankans. Dómsformaður, Arngrímur Ísberg, bað hann um að tilgreina hverjir hefðu verið í yfirstjórninni.

„Þegar ég hugsa um yfirstjórn bankans er ég að hugsa um Hreiðar Má Sigurðsson, Sigurð Einarsson og Ingólf Helgason,” svaraði Davíð en þremenningarnir eru allir ákærðir í málinu fyrir markaðsmisnotkun með hlutabréf í Kaupþingi.

Menn spurðu yfirmenn ekki spjörunum úr

Davíð sagðist hafa fengið þessa vitneskju frá samstarfsmönnum sínum í deild eigin viðskipta og yfirmanni, verðbréfasölunum Pétri Kristni Guðmarssyni, Birni Sæ Björnssyni og Einari Pálma Sigmundssyni. Þeir eru allir ákærðir fyrir aðild sína að markaðsmisnotkun með hlutabréf í bankanum. 

Aðspurður hvort að Pétur og Birnir hafi verið óánægðir með mikil afskipti Inólfs Helgasonar af viðskiptum eigin viðskipta með bréf í Kaupþingi kvaðst Davíð ekki hafa orðið var við almenna óánægju.

„Ég man eftir einu skipti þar sem mönnum fannst nóg um. Ég man að þeir settust niður með regluverði og “that was it”. Regluvörðurinn sagði að þetta væri allt í góðu.”

Davíð sagði svo að menn hafi bara gert það sem þeim var sagt:

„Það var ekki andrúmsloft þar sem það lá fyrir mönnum að spyrja yfirmenn spjörunum úr þegar mönnum var gert skýrt hvað þurfti að gera hverju sinni.”

„Það meikar engan sens að skoða það”

Mikið hefur verið rætt um svokallaða óformlega viðskiptavakt eigin viðskipta í hlutabréfum í Kaupþingi, hvort hún hafi verið þekkt á markaði og hvort bankinn hafi hagað viðskiptum sínum með eigin bréf á sama hátt og hann gerði í þeim félögum þar sem hann var með formlega viðskiptavakt, til dæmis Glitni og Landsbankanum.

Saksóknari vill meina að svo sé ekki og bar undir Davíð tölur sem sýna að eigin viðskipti settu inn fleiri kauptilboð í Kaupþing en sölutilboð á ákærutímabilinu, öfugt við það sem það gerði hjá Glitni og Landsbankanum, þar sem sölutilboðin voru fleiri en kauptilboðin.

„Eru þetta tölur yfir allt ákærutímabilið? Það meikar engan sens að skoða það. Þú verður að skoða hvern viðskiptadag fyrir sig,” sagði Davíð.

„Já, það er nú aldeilis búið að gera það hér,” sagði dómsformaður þá og uppskar hlátur viðstaddra en við skýrslutökur yfir Pétri og Birni var hver einasti viðskiptadagur á ákærutímabilinu borinn undir þá.

Verjandi Einars Pálma Sigmundssonar, sem var forstöðumaður eigin viðskipta og yfirmaður Davíðs, spurði hann hvort hann hefði einhvern tíma orðið var við að starfsmenn eigin viðskipta, og ákærðu í málinu, væru að stunda markaðsmisnotkun.

Davíð sagðist aldrei hafa talið það; hann hafi aldrei orðið var við neitt annað en að þeir væru faglegir í sínu starfi.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×