Kaupfélag Skagfirðinga hagnast um 2,1 milljarð ingvar haraldsson skrifar 21. apríl 2015 16:59 Höfuðstöðvar Kaupfélags Skagfirðinga á Sauðárkróki. vísir/pjetur
Kaupfélag Skagfirðinga hagnaðist um 2,1 milljarð króna á síðasta ári. Það er aukning um 400 milljónir frá árinu 2013 þegar hagnaðurinn nam 1,7 milljarði. Héraðsmiðilinn Feykir greinir frá þessu. Í inngangsorðum að ársskýrslu félagsins fyrir árið 2014, sem Feykir hefur undir höndum, segir Þórólfur Gíslason kaupfélagsstjóri að rekstur fyrirtækisins hafi gengið vel á árinu 2014. Heildarvelta þess var tæpir 27 milljarðar, sem er lækkun um 1,5 milljarða frá fyrra ári. Þórólfur segir lækkunina stafa af minni veltu í sjávarútvegi vegna þess að togarinn Örvar SK-2 var seldur í upphafi árs og togarinn Málmey SK-1 var frá veiðum síðustu fjóra mánuði ársins vegna breytinga. Jafnframt varð samdráttur í sölu kjötafurða, sem Þórólfur segir helst skýrast af því að stór kaupandi sem keypt hafi um 500 tonn af afurðum í sláturtíð undanfarin ár, hafi ekki gengið ekki frá kaupum á árinu. Eigið fé Kaupfélagsins nemur 23,7 milljörðum króna og er eiginfjárhlutfall um 68%. „Efnahagur er því góður og rekstur að skila góðum afköstum. Að geta fjárfest verulega á síðustu árum en lækka jafnframt skuldir má telja til forréttinda. Félagið hefur því góða stöðu til að takast á við ný verkefni og bæta og endurnýja tækjabúnað,“ segir Þórólfur í skýrslunni. Helstu fjárfestingar félagsins á árinu voru uppbygging þurrkstöðvar á vegum FISK-Seafood hf. á Sauðárkróki, sem lauk í byrjun árs 2015 og breytingar á togaranum Málmey SK-1 úr frystitogara í ferskfisktogara. Þá var samið um nýsmíði á togara fyrir FISK-Seafood í Tyrklandi.
Tengdar fréttir Stjórnarmaður í KS verður formaður stjórnar Byggðastofnunar Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra skipaði Herdísi Sæmundardóttur sem nýjan stjórnarformann Byggðastofnunar. 10. apríl 2015 13:36 Kaupfélögin eru hvergi nærri útdauð Stærstu kaupfélögin sem enn eru starfandi velta milljörðum á ári hverju. 1. október 2014 10:15 Mest lesið Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Viðskipti innlent Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Viðskipti innlent Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Viðskipti innlent Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Viðskipti innlent Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Viðskipti innlent Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Fleiri fréttir Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Sjá meira
Stjórnarmaður í KS verður formaður stjórnar Byggðastofnunar Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra skipaði Herdísi Sæmundardóttur sem nýjan stjórnarformann Byggðastofnunar. 10. apríl 2015 13:36
Kaupfélögin eru hvergi nærri útdauð Stærstu kaupfélögin sem enn eru starfandi velta milljörðum á ári hverju. 1. október 2014 10:15