Heilsa

Hvað segja kynlífstækin um þig?

sigga dögg skrifar
Ef þú rýnir í myndina sérðu hvaða græjur eru vinsælastar og það eftir litum.
Ef þú rýnir í myndina sérðu hvaða græjur eru vinsælastar og það eftir litum. Vísir/Skjáskot
Lovehoney er bresk netverslun sem selur kynlífstæki og tól.

Einn blaðamaður fékk tækifæri til að rýna í sölugögn verslunarinnar og kíkja í vörhúsið og skrifa um niðurstöðuna grein.

Niðurstöðurnar voru heldur betur áhugaverðar:

- Verslunin selur að meðaltali fjórar vörur, á hverri mínútu, á hverjum degi

- Um 120.000 typpahringir hafa selst á undaförnu ári

- Um 27.000 lítrar af sleipiefni hafa runnið þeim úr greipum en það er nóg til að mæta vatnsþörf fjögurra manna fjölskyldu í tvo mánuðu eða veita þær nægan vökva í 52 klukkustunda langa sturtu

- Á ári selja þau batterí sem samsvarar því að hafa kveikt á kanínutitrara samfleytt í 28 ár

Vörutegundir eftir vinsældumVísir
- Karlar eyða meiru en konur og kjósa frekar að fá vöruna fyrr og borga fyrir heimsendingu frekar en að bíða lengur og fá sendingarkostnaðinn felldan niður

- Fólk kaupir aðallega sleipiefni og svo titrara og nærföt

- Aðeins um 3% af kaupunum eru svokölluð „BDSM“ leikföng og dildóar (gervilimir)

- Þriðjungur manna sem panta af vefsíðunni panta titrara en aðeins 5% kynlífstæki hönnuð fyrir karla

- Konur kaupa frekar en karlar korselett (sérstaklega korselett í stærri stærðum) og allskonar gríngjafir líkt og vúdú dúkku eða erótísk spil

- Karlar kaupa oftar hárkollur frekar en konur

- Karlar kaupa frekar endaþarmstengdar vörur heldur en konur

Vísir
- 1% karla sem kaupir sér rúnkmuffu (vasaljós) kaupir sér í útliti sem kallast geimvera og er blátt

- Karlar kaupa oftar smokka en konur 

- Einhleypir karlar kaupa í auknari mæli buttplug (rassatæki) frekar en þeir sem eru í sambandi og frekar en konur

- Karlar kaupa frekar stærri dildó en konur og sama má segja um buttplug

Skýrslan er töluvert ítarlegi og getur þú dundað þér við lesturinn hér.


Tengdar fréttir

Sleipiefni skal smakka

Sleipiefni er fáanlegt með allskyns bragðtegundum og sumar geta ert kynfærin og því er vissara að smakka fyrst.

Kynlífstæki fyrir typpi

Stundum er kvartað undan því að kynlífstækjamarkaðurinn sé of píku miðaður en vissulega eru til tæki fyrir typpi.

Nuddaðu snípinn!

Ef þú stundar kynlíf með píku þá er mikilvægt að muna eftir snípnum.

Umhverfisvænt kynlíf

Kynlífstæki erum mörg úr óumhverfisvænum efnum auk þess að mögulega skaðleg rotvarnarefni eru í mörgum sleipiefnum, hér eru nokkrar leiðir til að gera kynlífið betra fyrir þig og umhverfið.








×