Heilsa

Ljomandi með Þorbjörgu - Glúten

Rikka skrifar

Mikil umræða hefur verið um prótínið glúten á undanförnum árum og viðkvæmni í meltingafærum sem einstaklingar finna fyrir við neyslu þess. Prótínið er að finna í allmörgum korntegundum og má þar helst nefna hveiti, bygg, rúgur, spelt og sumum gerðum hafra.

Glútenofnæmi (celiac disease) er sjúkdómur sem framkallar ofnæmisviðbrögð í líkamanum og getur smám saman valdið eyðingu í meltingafærum sé glútens neytt en getur gengið tilbaka sé því hætt. Einkenni við þessum sjúkdómi eru alvarlegar meltingatruflanir, þreyta, þyngdartap og næringaskortur svo dæmi séu nefnd. Kenningar hafa verið settar fram um annað afbrigði af sjúkdómnum sem gæti kallast glútenóþol en það framkallar ekki ofnæmisviðbrögð og hægt að halda í skefjum á glútenlausu fæði.

Þó svo að einstaklingar finni fyrir óþægindum við neyslu vara sem innihalda glúten er ekki sjálfgefið að þeir þjáist af sjúkdómnum og mikilvægt að leita til lækna liggi grunur um að svo sé. Iðraólga (Irritable Bowel Syndrome) er svo annað fyrirbæri sem hefur ekki ósvipuð einkenni og glútenofnæmi. Glúten getur því snert marga viðkvæma fleti þegar kemur að meltingunni og réttast að sneiða hjá því sé fundið fyrir fyrrnefndum einkennum.

Steinaldarbollur Tobbu

úr matreiðslubókinni: Matur sem yngir og eflir. Salka Forlag 2008

200 g graskersfræ eða sólblómafræ


250 g hörfræ / hörfræmjöl

300 g malaðar möndlur eða möndlufræ

450 rifnar gulrætur

6 egg

safi og rifinn börkur af 1 lífrænni sítrónu

1 msk hunang

2 tsk kanilduft

4 tsk sjávarsalt

2 tsk allrahandana eða múskat duft

1 msk smátt skorin engiferrót

Hitaðu ofninn í 170°C. Grófmalaðu fræin í matvinnsluvél. Blandaðu öllu innihaldi saman í stóra skál. Mótaðu 15-15 bollur og raðaðu þeim á pappírsklædda ofnplötu, bakaðu í 45 mínútur. Gott er að útbúa tvöfalda uppskrift, í einn hlutann er hægt að bæta við rúsínum eða kakónibbum og verða þær þá í sætari kantinum. Bollurnar geymast í 2-3 daga í kæli en einnig er hægt að frysta þær.

Kjúklingabringur

4-6 stk lífrænar kjúklingabringur

1l soð

Látið suðuna koma upp á vatninu og sjóðið bringurnar í 15-20 mínútur með lokið á. Kælið bringurnar í soðinu og geymið í vel lokuðu íláti. Kjúklingurinn geymist í u.þ.b. 4-5 daga.

Pestó

1 dl graskersfræ

1 dl hesslihnetur

1 dl lífræn ólífuolía frá Himneskt

2 tsk sjávarsalt

4-5 þurrkaðir tómatar/ lagðir í bleyti í vatni í 1 klst eða lengur

1 rif hvítlaukur

safi úr 1/2 sítrónu

handfylli af ferskri steinselju eða basiliku

Blandið öllu vel saman í matvinnsluvél en þó ekki of lengi þar sem að pestóið á að vera gróft.

Frekari upplýsingar má finna á Facebook síðu Þorbjargar


Tengdar fréttir

Ljómandi með Þorbjörgu - Fita

Ljómandi með Þorbjörgu eru nýir örþættir á Heilsuvísi þar sem fjallað verður um heilsuna og hvernig þú getur bætt hana með einföldum og góðum ráðum úr fórum Þorbjargar eða Tobbu. Í fyrsta þættinum fræðir hún okkur um lífsnauðsynlega fitu og hvernig við getum nýtt hana til þess að halda okkur í góðu formi og til þess að halda uppi jafnri orku allan daginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×