Glamour

Er íslensk tíska jafn kraftmikil og náttúran ykkar?

Ritstjórar Glamour út um allan heim
Ritstjórar Glamour út um allan heim
Útgáfufyrirtækið Condé Nast, sem ásamt 365 gefur út GLAMOUR á Íslandi, leggur mikið upp úr samstarfi útgáfa á þeirra vegum, þvert á lönd og álfur.



Það er gaman að vera hluti af GLAMOUR-fjölskyldunni.

Cindi Leive
Cindi Leive - ritstjóri Glamour í Bandaríkjunum

„Þegar ég heimsótti Ísland fyrir nokkrum árum síðan kom fyrirhafnalaus  stíll ykkar mér á óvart, ekki bara í tísku heldur líka í heimili og hönnun. Ég gat ekki hætt að taka myndir! Ég er mjög spennt að sjá íslenska Glamour fanga þá stemningu og deila með heiminum. Hamingjuóskir og velkomin í Glamour -fjölskylduna!“

Jo Elvin
Jo Elvin - ritstjóri Glamour í Bretlandi

„Hamingjuóskir! Hlakka mikið til að lesa íslenska Glamour. Það er heilmargt sem kemur upp í hugann  þegar ég hugsa um Ísland en mest öfunda ég ykkur á dagsljósinu allan sólahringinn á sumrin. Ást frá London, þar sem myrkrið skellur á klukkan 15 á daginn.“

Maria Fedorova
Maria Fedorova - ritstjóri Glamour í Rússlandi

"Ég vil bjóða íslenska Glamour velkomið í stóra Glamour-liðið sem hefur lesendur um allan heim! Þegar ég hugsa um Ísland hugsa ég um fallegt landslag, og ótrúlega samblöndu kaldra vinda og heitra lauga, sem spilar sterkt inn í menningu landsins! Ég get ekki beðið eftir að sjá fyrsta blaðið og óska ritstjórninni alls hins besta. Það er gaman að lesa Glamour og það er gaman að búa til Glamour"

Sanne Groot Koerkamp
Sanne Groot Koerkamp - ritstjóri Glamour í Hollandi

„Þetta er mjög spennandi! Þegar ég hugsa um Ísland velti ég fyrir mér hvort íslensk tíska sé jafn kraftmikil og náttúran ykkar?“

Anna Jurgas
Anna Jurgas - ritstjóri Glamour í Póllandi

„Þegar ég hugsa um Ísland sé ég fyrir mér mikið rými, vind og leiði hugann að saltbragði, töfrum og innri friði. Ég hugsa líka alltaf um svolítið sem vinur minn, sem er spámaður, sagði einu sinni umað ég hefði átt að fæðast í Reykjavík.“

Andrea Ketterer
Andrea Ketterer - ritstjóri Glamour í Þýskalandi

„Velkomin í klúbbinn og gangi ykkur sem allra best! Þegar ég hugsa um Ísland sé ég fyrir mér dularfullt og náttúrulegt draumaland. Og já, álfa sem læðast um og fela sig undir steinum.“

Monica Salgado
Monica Salgado - ritstjóri Glamour í Brasilíu

„Það fyrsta sem mér dettur í hug þegar ég hugsa um Ísland er falleg og friðsæl náttúra sem Glamour mun fylla með litum og jákvæðri orku! Gangi ykkur sem allra best. Margir kossar frá heitu og sólríku Brasilíu – það er sagt að andstæður laðist hver að annarri svo við skulum gera eitthvað skemmtilegt saman.“





Erin Doherty
Erin Doherty - ritstjóri Glamour í Frakklandi

„Það fyrsta sem mér dettur í hug þegar ég hugsa um Ísland er magnað landslag! Mig dreymir um að koma og taka tískuþátt hjá ykkur. Einn daginn verður það að veruleika! Og þið eruð svo svöl að maður gleymir kuldanum… Velkomið íslenska  Glamour! Með ást og stuðningi frá franska Glamour.“

Lucy Lara - ritstjóri Glamour í Mexíkó og Rómönsku Ameríku

„Löngu kominn tími á Glamour ykkar megin á hnettinum. Velkomin!! Þegar ég hugsa um Ísland sé ég fyrir mér undursamlega náttúrlegafegurð, ekki bara á landinu heldur líka í ykkur fólkinu.“

Cristina Lucchini - ritstjóri Glamour á Ítalíu

„Hlýjar kveðjur til íslenska Glamours frá ítölsku frændum ykkar! Con amore!“






×