Viðskipti innlent

Neytendastofa sektar fjögur fyrirtæki á Akureyri

ingvar haraldsson skrifar
Neytendastofa hefur sektað fjögur fyrirtæki á Akureyri vegna skorts á verðmerkingum.
Neytendastofa hefur sektað fjögur fyrirtæki á Akureyri vegna skorts á verðmerkingum. mynd/pjetur
Neytendastofa hefur sektað fjögur fyrirtæki vegna skorts á verðmerkingum í verslunum þeirra á Akureyri. Fyrirtækin sem um ræðir eru N1 Hörgárbraut, Hárkompan, Halldór Ólafsson og Samkaup Strax vegna verslana að Borgarbraut og Byggðavegi.

Neytendastofa kannaði ástand merkinga í verslunum fjölda verslana og sölustaða á Akureyri  í júlí og í desember 2014. Í seinni eftirlitsferð Neytendastofu hafði ástand verðmerkinga í verslunum á Akureyri batnað verulega segir í frétt á vef Neytendastofu.

Nokkrar verslanir höfðu þó ekki sinnt tilmælum Neytendastofu með fullnægjandi hætti og voru því sektaðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×