Mögnuð endurkoma KR-inga og staðan er orðin 2-0 Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. mars 2015 20:59 Brynjar Þór Björnsson kláraði leikinn í kvöld. Vísir/Ernir
KR-ingar lentu mest 18 stigum undir í þriðja leikhluta en unnu samt í Grindavík í kvöld í öðrum leik liðanna í átta liða úrslitum Dominos-deildar karla í körfubolta. KR vann leikinn 81-77 og getur þar með tryggt sér sæti í undanúrslitum á heimavelli sínum í næsta leik. KR vann fyrsta leikinn 71-65 í DHL-höllinni. Brynjar Þór Björnsson, fyrirliði KR-liðsins, skoraði sjö síðustu stig leiksins og tryggði sínum mönnum þar með magnaðan endurkomusigur. Helgi Már Magnússon skoraði 21 stig fyrir KR og Brynjar var með 18 stig. Pavel Ermolinskij var með 11 stig og 9 fráköst á 18 mínútum. Ólafur Ólafsson og Rodney Alexander skoruðu báðir 17 stig fyrir Girndavík en Ólafur var að koma aftur inn í Grindavíkurliðið eftir veikindi. Grindavík var þrettán stigum yfir fyrir lokaleikhlutann en hann var KR-liðið hinsvegar 27-10. KR-ingar virtust vera í góðum málum eftir fyrsta leikhlutann enda strax komnir níu stigum yfir, 25-16. Vesturbæingar voru síðan ellefu stigum yfir, 32-21, þegar Grindvíkingar fóru í gang. Grindavíkurliðið fór þá heldur betur á flug, vann síðustu sjö mínútur fyrri hálfleiksins, 26-7 og var því átta stigum yfir í hálfleik, 47-39. Þorsteinn Finnbogason og Þorleifur Ólafsson áttu báðir frábæra innkomu í Grindavíkurliðið á þessum kafla en þeir skoruðu báðir tvo þrista og skoruðu til samans sextán stig á þessum sjö mínútum. Grindvíkingar unnu þriðja leikhlutann 20-15 og voru því þrettán stigum yfir, 67-54, fyrir lokaleikhlutann en Grindavíkurliðið var þá búið að halda Michael Craion í átta stigum fyrstu 30 mínútur leiksins. KR-ingar fundu hinsvegar taktinn í fjórða og síðasta leikhlutanum sem liðið vann 27-10 og tryggði sér sigurinn og þar með 2-0 forystu í einvíginu.
Dominos-deild karla Mest lesið Enginn sá tölvupóstinn frá UEFA Sport Konate gæti farið frítt frá Liverpool Sport Þorsteinn Roy fyrstur í mark annað árið í röð Sport Sigurvegarinn Þorsteinn: „Það má ekki á Íslandi“ Sport Elías Már skrifar undir hjá kínversku liði Sport Hákon skoraði tvö í vináttuleik Sport Uppgjörið: Vestri í úrslit í fyrsta skipti Íslenski boltinn „Síðasti leggurinn var helvíti þungur“ Sport Ekki pláss fyrir Rúnar í flugvélinni: „Ég fórnaði mér í þetta“ Íslenski boltinn Leik lokið: Svíþjóð 4 - 1 Þýskaland | Úrslitaleikur um efsta sætið Fótbolti Fleiri fréttir Stjarna Cavs trúlofuð Grammy verðlaunahafa Doncic fékk að vita af sölunni en ekki LeBron Skellur í fyrsta leik hjá guttunum okkar Ísköld Clark stýrði sókninni eins og hershöfðingi Líkti Cooper Flagg við Kobe Bryant Áframhaldandi NBA tengingar í Bónus deildinni Taka einn efnilegasta leikmanninn frá Íslandsmeisturum Hauka Julio de Assis og Luka Gasic í Stjörnuna Birkir Hrafn í NBA akademíunni „Þetta gerist rosa hratt“ Sengun í fantaformi í sumarfríinu Hægt að gista í glæsihúsi Michael Jordan Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Sengun í fantaformi í sumarfríinu Jokic framlengir ekki að sinni Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Fylkir og Valur í formlegt samstarf Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Sjö lið skiptust á sex leikmönnum Tyrese Haliburton missir af öllu næsta tímabili KR semur við ungan bandarískan framherja Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn Sjá meira