Viðskipti innlent

Íslensk verðbréf töpuðu 118 milljónum

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Sigþór Jónsson er framkvæmdastjóri Íslenskra verðbréfa.
Sigþór Jónsson er framkvæmdastjóri Íslenskra verðbréfa.
Hagnaður Íslenskra verðbréfa árið 2014 af reglulegri starfsemi var um 130 milljónir króna samanborið við 160 milljónir króna árið 2013.  Hreinar rekstrartekjur ársins námu 539 milljónir samanborið við 584 milljónir árið 2013.  

Á árinu voru gjaldfærðar 291 milljónir vegna uppgjörs afleiðusamninga í kjölfar niðurstöðu dómsstóla í janúar 2015.  Tap varð þannig af rekstri samstæðunnar á árinu 2014 upp á 118,4 milljónir samkvæmt rekstrarreikningi samanborið við 138,3 milljóna króna hagnað árið 2013.

Eigið fé í árslok 2014 nam 473 milljónir. samkvæmt efnahagsreikningi og eiginfjárhlutfall samstæðunnar sem reiknað er samkvæmt 84. gr. laga um fjármálafyrirtæki er í árslok 22,6%.

Heildareignir félagsins í stýringu voru þær sömu í lok árs og í upphafi þess og stýrir félagið nú 112 milljörðum króna fyrir einstaklinga, félagasamtök og fagfjárfesta.  Alls voru rúmlega 2 þúsund einstaklingar og lögaðilar með fjármuni í eignastýringu og vörslu hjá félaginu.

Í desember á síðasta ári fékk Straumur fjárfestingarbanki hf., ásamt Íslenskri eignastýringu ehf.,  heimild frá FME til þess að fara með yfir 50% eignarhlut í félaginu. Við það var ákveðinni óvissu sem verið hafði um eignarhald félagsins eytt. Stjórn félagsins réð Sigþór Jónsson sem framkvæmdastjóra í febrúar 2015. „Við getum ekki annað en verið nokkuð sátt við þessa niðurstöðu, ekki síst þegar horft er til þeirrar óvissu sem hefur ríkt um eignarhald og framtíðarsýn félagsins,“ segir Sigþór um reksturinn á árinu 2014. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×