304 ferðamenn á hverja 100 íbúa Aðalsteinn Kjartansson skrifar 26. mars 2015 10:23 Ísland meðal þeirra ríkja sem hafa hæsta hlutfall ferðamanna á íbúa. Vísir/GVA
Ferðamönnum á Íslandi hefur fjölgað margfalt umfram landsmenn. Árið 1949 komu 4 ferðamenn til landsins fyrir hverja 100 íbúa en samsvarandi hlutfall var 304 á móti hverjum 100 á síðasta ári. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Hagfræðideildar Landsbankans um ferðaþjónustu á Íslandi sem fjallað er um í Hagsjá, fréttabréfi Hagfræðideildarinnar. Þar kemur fram að Ísland er í 18. sæti af 152 aðildarríkja Alþjóðabankans árið 2012 miðað við þennan mælikvarða á fjölgun ferðamanna. Það setur landið í topp 11 prósent. „Erlendum ferðamönnum fjölgaði mikið hér á landi bæði árin 2013 og 2014 og því er líklegt að Ísland hafi fikrað sig ofar á þessum lista,“ segir bankinn. Þau lönd sem eru ofar en Ísland á listanum eru helst lönd sem byggja efnahag sinn að stórum hluta á ferðamennsku og í öðru lagi eru þetta smáríki eða tiltölulega fámenn ríki, að því er segir í skýrslunni. Aðeins þrjú ríki eru ofar en Ísland á listanum með yfir milljón íbúa; Austurríki, Króatía og Eistland.Mikill vöxtur hefur verið í komu ferðamanna hingað lands síðustu ár en segja má að sérstakt vaxtarskeið hafi byrjað árið 2011. Það tímabil er orðið þriðja mesta fjögurra ára vaxtarskeið íslenskrar ferðaþjónustu. Leita þarf fimmtíu ár aftur í tímann til að finna meiri vöxt á fjögurra ára tímabili.
Mest lesið Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Viðskipti innlent Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Viðskipti innlent Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Viðskipti innlent Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Viðskipti innlent Túnfisksævintýri Íslendinga endar með ósköpum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Sjá meira