Heilsa

Brjóst og ekki brjóst

sigga dögg skrifar
Vísir/Getty
Þegar við sjáum eitthvað oft þá verður ákveðin viðvani og hlutur sem áður þótti framandi, jafnvel ógnvænlegur, verður það ekki lengur.

Hin formlega skýring á viðvana er eftirfarandi:

Endurtekin birting óskilyrta áreitisins leiðir til stigminnkandi styrks skilyrtrar svörunar.

•Fyrst er mikil minnkun í svörun en svo jafnast það út.

•En ef óskilyrta áreitið er haldið frá í lengri tíma eykst svörun aftur

•Því oftar sem viðvani á sér stað því hraðar verður viðvani í hvert skipti

Þetta í raun þýðir að af því að #freethenipple myndirnar eru í dreifingu á netinu þá gætu allar þessar geirvörtur gert það að verkum að þú hættir að veita brjóstum sérstaka athygli og einmitt hættir að tengja þær við eitthvað kynferðislegt.

Þetta er spurning um um skilyrðingu og að tengja eitt saman við annað. Rétt eins og súkkulaði í eggjalögun er tengt við páskana þá er hægt að tengja brjóst við eitthvað sem ekki er kynferðislegt heldur bara hluti af líkamanum.

Svipað er uppi á teningnum með brjóstgjöf, með því að hana sýnilega þá er verið að minna á að brjóst eru ekki kynfæri heldur einfaldlega enn einn staður á líkamanum sem er háður einstaklingsbundnu útliti.

Það mætti líka líta á þetta átak sem kerfibundna ónæmingu eða flæði sem einnig er notuð sem meðferð við fælni

Kerfisbundin ónæming er þegar fólk látið búa til óttastigveldi, þar sem það raðar óttavöldunum í þrep eftir því hversu mikinn ótta þeir vekja. Fólk ímyndar sér svo hvert þrep í stigveldinu, eitt á eftir öðru, á meðan það slakar á. Slökunin parast því við það sem fólk óttaðist, og kemur því að lokum í staðinn fyrir kvíðann sem það vakti áður upp.

Í flæði er skjólstæðingurinn sífellt látinn horfast í augu við það sem hann óttast, þar til það hættir að vekja með honum kvíða. Dæmi um það er ef fólk með lofthræðslu þyrfti að standa á svölum á 8. hæð í blokk til lengri tíma. Þessi aðferð virkar yfirleitt hratt fyrir sig.

Horfðu á brjóstin og skoðaðu hvaða hugmyndir vakna og veltu því fyrir þér hvaðan þessar hugmyndir koma og hvort ekki sé komin tími til að skipta hreinlega um afstöðu gagnvart brjóstum.


Tengdar fréttir

Ætla berbrjósta í Laugardalslaugina og vilja þig með

Þrjár íslenskar stúlkur, sem urðu fyrir því að Facebook eyddi út #FreeTheNipple viðburði á þeirra vegum, standa fyrir sundferð í Laugardalslaugina í kvöld. Hvetja þær alla til að láta sjá sig og flagga fögrum brjóstum.

FreeTheNipple

Ég prófaði að hefta, líma, negla og sauma fyrir munninn á mér því ég ætlaði sko ekki að tengja mig þessum degi á nokkurn hátt. En hér er ég. Að tengja mig, tengjast, vera tengd, en samt á allt annan hátt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×