Viðskipti innlent

Ekkert fékkst upp í kröfur við gjaldþrot Nammibarsins

ingvar haraldsson skrifar
Nammibarinn var lýstur gjaldþrota í nóvember 2013.
Nammibarinn var lýstur gjaldþrota í nóvember 2013. vísir/stefán
Ekkert fékkst upp í kröfur við gjaldþrot Nammibarsins ehf. Verslunin var úrskurð gjaldþrota í nóvember 2013 en skiptum við það lauk þann 4. mars síðast liðinn samkvæmt því sem fram kemur í Lögbirtingarblaðinu í dag. Félagið skipti um nafn við gjaldþrotið og hefur síðan heitið SG 109 ehf.

Sjá einnig: Nammibarinn gjaldþrota

Lýstar kröfur voru 43.708.714 krónur en engar eignir fundust í búinu. Því fékkst ekkert upp í lýstar kröfur, auk áfallinna vaxta og kostnað eftir úrskurðardag gjaldþrotaskipta.

Nammibarinn rak nokkrar sælgætisverslanir þar sem finna mátti bæði hnetu- og sælgætisbari.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×