Viðskipti innlent

Síminn og Vodafone takast á um Tímaflakk

ingvar haraldsson skrifar
Síminn hefur krafið Fjarskipti hf., móðurfélagi Vodafone, um 400 milljónir króna vegna notkunar á vörumerkinu Tímaflakk.
Síminn hefur krafið Fjarskipti hf., móðurfélagi Vodafone, um 400 milljónir króna vegna notkunar á vörumerkinu Tímaflakk. vísir/daníel
Síminn hefur krafið Fjarskipti hf., móðurfélagi Vodafone, um 400 milljónir króna vegna þess sem þeir telja ólögmæta notkun á vörumerkinu Tímaflakk.

Síminn fékk merkið Tímaflakk skráð hjá Einkaleyfastofu árið 2013 en Fjarskipti andmæltu ákvörðuninni. Einkaleyfastofa tók andmælin fyrir en úrskurðaði þann 12. febrúar síðastliðinn að skráning Símans á orðmerkinu Tímaflakk væri gild.

Tímaflakk er notað yfir þá tækni á myndlyklum að horfa á sjónvarpsdagskrá sólahring aftur í tímann.

Fjarskipti hefur ákveðið að áfrýja skráningunni til áfrýjunarnefndar vörumerkjamála til Einkaleyfastofu.

Fjarskipti segja í tilkynningu til Kauphallar Íslands ekki vera grundvöll fyrir kröfu Símans sem sé í engu samræmi við málsatvik og dómafordæmi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×